Útgáfa innistæðubréfa er dulbúin vaxtahækkun 24. september 2009 13:19
Leið má góðar líkur á því að boðuð útgáfa innistæðubréfa sé dulbúin vaxtahækkun af hálfu Seðlabankans. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Seðlabankans. Í Morgunkorninu segir að tilgangur þess að hefja útgáfu innstæðubréfa að nýju er að draga úr lausu fé í umferð og færa þar með vaxtastig innlánsvaxta í fjármálakerfinu nær vöxtum Seðlabankans. Undanfarið hafa innlánsvextir á millibankamarkaði verið mun lægri en innlánsvextir Seðlabankans. Telur bankinn þetta grafa undan krónunni þar sem sá vaxtamunur sem fjármagnseigendur standa frammi fyrir milli Íslands og annarra landa er í raun talsvert minni en munur stýrivaxta gefur til kynna. Seðlabankinn tilkynnti í morgun að bankinn myndi á ný hefja útgáfu innstæðubréfa til innlendra fjármálastofnana. Bréfin, sem verða bundin til 28 daga, verða boðin upp vikulega og hefst útgáfa þeirra næstkomandi miðvikudag. Á hverju uppboði verða seld innstæðubréf að andvirði 15 - 25 ma.kr. og geta fjármálastofnanir sem eru í viðskiptum við Seðlabankann boðið í vexti þeirra, lægst 9,5% en hæst 10% vexti. Til samanburðar voru fastir vextir á þeim innstæðubréfum sem boðið var upp á í júlí, og voru þeir 9,75%. Greining Íslandsbanka segir að þrátt fyrir áhyggjur Seðlabankans af ofgnótt lausafjár hefur bankinn ekki verið ýkja fastur í rásinni hvað varðar lausafjárstýringu í fjármálakerfinu undanfarið. Í kjölfar þess að hætt var útgáfu framseljanlegra innstæðubréfa, sem að mestu voru í eigu útlendinga, í júní hóf bankinn útgáfu 7 daga innstæðubréfa til fjármálastofnana sem ekki voru framseljanleg. Á sama tíma hætti bankinn að bjóða upp á bundin innlán fyrir fjármálastofnanir. Bankinn minnkaði síðan jafnt og þétt þá upphæð innstæðubréfa sem hann var tilbúinn að selja fjármálastofnunum úr 75 milljörðrum kr. í upphafi júlímánaðar í 35 milljarða kr. í júlílok. Í ágúst og september bauð Seðlabankinn svo ekki upp á nein innstæðubréf, fyrr en með útgáfunni sem tilkynnt var um í morgun. „Þessi þróun er athyglisverð í ljósi þeirrar skoðunar bankans að ofgnótt lausafjár í fjármálakerfinu standi peningastjórnuninni og styrkingu krónu fyrir þrifum um þessar mundir," segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Viðskipti innlent Að umbreyta fómó í jómó um verslunarmannahelgina Atvinnulíf Hagnaðist um 2,2 billjónir króna Viðskipti erlent Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Viðskipti innlent Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Viðskipti innlent „Verið að auglýsa öryggi sem er falsöryggi“ Neytendur Hagnaður minnkar um 38 prósent og arðgreiðsla óákveðin Viðskipti innlent Fékk ekki að lækka afborganir því hún komst ekki í gegnum greiðslumat Neytendur Arion hagnaðist um tíu milljarða á öðrum fjórðungi Viðskipti innlent Vara við eggjum í kleinuhringjum Neytendur Fleiri fréttir Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Arion hagnaðist um tíu milljarða á öðrum fjórðungi Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Festi hagnast umfram væntingar Þota Play komin úr viðgerð eftir skemmdir vegna hagléls Evrópa verði upp á Kína komin verði af tollunum Sigurður viðskiptastjóri innviðalausna hjá Ofar Hagnaður minnkar um 38 prósent og arðgreiðsla óákveðin Funda með ráðherra vegna tollanna: „Ég ætla ekki að setjast í neitt dómarasæti“ Á ég að greiða inn á lánið eða spara? Loksins, mathöllin og fleiri staðir fá nýja rekstraraðila „Við erum að bæta við atvinnustoð í samfélaginu“ Kristján og Leó kaupa Landsbankahúsið á tæpa þrjá milljarða Sjómönnum sagt upp: Skipulagsbreytingar vegna veiðigjalda Vaxtalækkun í ágúst sé nánast útilokuð Opnuðu loks Hygge eftir 245 daga bið Verðbólgan hjaðnar á ný Gáfust upp á Facebook og opna verslun fyrir notaðar íþróttavörur Endurskipuleggja reksturinn „í vinsemd og virðingu“ Tekjur jukust um helming milli ára Hátt í þrjátíu sagt upp hjá Play Gengið rétti lítillega úr kútnum en hefur aldrei verið lægra Róðurinn þungur en hefur ekki áhyggjur af Play HBO Max streymisveitan komin til Íslands Gengi Play í frjálsu falli Alþjóðlegt bílafyrirtæki kaupir Öskju og systurfélög Búast við tveggja milljarða tapi Samruninn muni taka langan tíma Orri til liðs við Íslandsbanka Sjá meira