Enski boltinn

Gazza sér eftir því að hafa ekki farið til Man. Utd

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Gazza hefur gert mörg mistök um ævina.
Gazza hefur gert mörg mistök um ævina. Nordic Photos / Getty Images

Paul Gascoigne segist sjá eftir því að hafa ekki farið til Man. Utd sem unglingur. Ef hann hefði gert það væri hann kannski í betri málum en hann er í dag.

Gascoigne stóð til boða að fara í akademíuna hjá United sem táningur en tók því ekki. Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, sagði á dögunum að mestu vonbrigðin á hans ferli hefðu verið að fá ekki Gazza til United.

„Ef ég hefði farið til Man. Utd væri ég kannski enn þar. Ég veit samt ekki en lítið á þessa leikmenn og ungu drengina hjá United. Rooney var þarna ungur, Neville-bræðurnir og svo Becks. Sjáið hvernig Alex ól þessa stráka upp. Bar virðingu fyrir þeim á sama tíma og hann gerði þá að karlmönnum," sagði Gascoigne í viðtali við Sky.

Hann segist ekki hafa talað við Sir Alex fyrr en sex árum síðar.

„Ég hringdi í hann frá Lazio og spurði hvort hann væri til í að gera við mig samning. Hann var þá með Cantona og sagðist ætla að athuga fyrst hvað hann væri að hugsa. Menn vita samt að þegar menn svíkja Sir Alex eins og ég gerði þá fá menn ekki annað tækifæri," sagði Gazza sem dreymir um að stýra liði Newcastle.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×