Erlent

Gagnrýnir lúxus í unglingafangelsi

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Vistmenn Warren Hill þurfa væntanlega ekki að sætta sig við aðbúnað á borð við það sem hér sést. Þeir spila hins vegar tölvuleiki og reykja kannabis í vistinni.
Vistmenn Warren Hill þurfa væntanlega ekki að sætta sig við aðbúnað á borð við það sem hér sést. Þeir spila hins vegar tölvuleiki og reykja kannabis í vistinni.

Unglingafangelsið Warren Hill í Suffolk í Bretlandi sætir gagnrýni félagsmálayfirvalda þar eftir að fyrrverandi starfsmaður ljóstraði því upp að fangelsið minnti í besta falli á þægilegar sumarbúðir. Vistmenn fengju þar að njóta allra þeirra þæginda sem hugurinn girntist, þeir hefðu aðgang að risasjónvörpum og tölvuleikjum auk þess sem þeir gætu pantað sér vörur að vild. Þá virtist kannabisneysla ekki vera vandamál innan múranna og hefði einn fanginn sagt starfsmanninum að með því fengist ró í fangelsinu um nætur. Stjórnendur Warren Hill vísa áburðinum alfarið á bug.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×