Viðskipti innlent

Skaðabótaskylda stjórnenda Samvinnutrygginga ehf. er fyrnd

Skaðabótaskylda stjórnenda Eignarhaldsfélagsins Samvinnutrygginga er fyrnd, hafi hún verið fyrir hendi, að mati Lagastofnunar Háskólans. Þetta kemur fram í skýrslu um starfsemi Samvinnutrygginga, eignarhaldsfélags samvinnutrygginga og dótturfélaga, sem fréttastofa hefur undir höndum.

Fram kemur í skýrslunni, og greint var frá í fréttum Stöðvar tvö í gær, að slíta hefði átt Samvinnutryggingum árið 1994, samkvæmt skýrslunni. Það var ekki gert og síðar tók félagið þátt í ýmsum fjárfestingum, meðal annars kaupum á Búnaðarbankanum.

Fjárfestingafélagið Gift var svo stofnað í hittiðfyrra og stóð til að allir sem áttu réttindi í samvinnutryggingum, fjöldi fyrirtækja og tugþúsundir einstaklinga, fengju þar hlutabréf. Helstu eignir félagsins hurfu í hruninu og eftir standa milljarðaskuldir.

Eignarhaldsfélagið Samvinnnutryggingar varð til árið 1994 úr Samvinnutrygginum. Í skýrslunni kemur fram að Vátryggingareftirlitinu hefði á sínum tíma verið óheimilt að samþykkja formbreytinguna; sú skylda hafi hins vegar hvílt á stjórn félagsins og fulltrúaráði að slíta félaginu.

Í skýrslunni segir að afstaða Vátryggingareftirlitsins hafi skipt sköpum í málinu því formbreytingin hefði ekki komið til án samþykkis þessa opinbera eftirlitsaðila. Velt er vöngum yfir hugsanlegri skaðabótaskyldu stjórnar félagsins og fulltrúaráðs, og eftir atvikum opinberra aðila; vegna þess að félaginu var ekki slitið á þessum tíma. Lítill vafi sé á því að brot hafi verið framið með ólögmætum og saknæmum hætti, þannig að bótaskilyrðum hafi verið fullnægt.

Niðurstaða skýrsluhöfundar er hins vegar sú að skaðabótaskyldan sé nú fyrnd, hafi hún verið fyrir hendi. Fulltrúaráð Eignarhaldsfélagsins hefur verið boðað til fundar átjánda desember næstkomandi. Þar verður skýrslan kynnt og er búist vioð því að í kjölfarið verði tekin ákvörðun um framtíð félagsins og Fjárfestingarfélagsins Giftar, en farið hefur verið fram á það við kröfuhafa Giftar að þeir samþykkir að félagið fái að leita nauðasamninga.







Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×