Hagnaður af reglulegri starfsemi TM tæpar 500 milljónir 28. ágúst 2009 08:14
Hagnaður Tryggingamiðstöðvarinnar (TM) af reglulegri starfsemi á fyrri helmingi ársins 2009 var 491 milljónir kr. samanborið við 2,5 milljarða kr. tap á sama tímabili í fyrra. Í tilkynningu um uppgjörið segir að hagnaður af vátryggingastarfsemi var 27 milljónir kr. fyrir skatta samanborið við 29 milljóna kr. hagnað á sama tímabili 2008. Fjárfestingatekjur félagsins voru jákvæðar sem nemur 2,2 milljörðum kr. á fyrri helmingi ársins en voru neikvæðar um 499 milljónir kr. á sama tímabili 2008. Eigin tjónakostnaður lækkaði um 6% og var 4,2 milljarðar kr. á fyrri helmingi ársins samanborið við tæpa 4,5 milljarða kr. á sama tímabili 2008. Eigið fé nam 8,6 milljörðrum kr. og eiginfjárhlutfall var 28% þann 30. júní 2009. „Helsta verkefni félagsins undanfarin misseri hefur verið að bæta afkomu af vátrygginga-starfseminni. Sú vinna hefur haft þau áhrif að hægt hefur verulega á vexti og tjónakostnaður lækkar milli ára," segir Sigurður Viðarsson, forstjóri TM, í tilkynningunni. „Markmið um að bæta afkomu eignatrygginga og frjálsra ökutækjatrygginga náðust þegar á fyrri hluta ársins. Afkoma skipa-, slysa- og ábyrgðatrygginga á tímabilinu veldur hins vegar vonbrigðum. Unnið er markvisst að úrbótum og mun sú vinna halda áfram þar til jafnvægi hefur náðst. Árangur þeirrar vinnu ætti að verða ljós á fyrsta fjórðungi næsta árs. Afkoma félagsins af fjárfestingastarfsemi skýrist að mestu af vaxtatekjum, kröfulækkun ríkistryggðra skuldabréfa og hækkun hlutabréfa. Hagnaður af aflagðri starfsemi skýrist af gengishagnaði við sölu á norska vátryggingafélaginu Nemi. Fjárhagsleg staða TM er sterk og eignir á móti vátryggingaskuld (bótasjóður) traustar. Geta félagsins til að standa við skuldbindingar sínar er vel umfram það sem opinberir aðilar gera kröfur um."
Mest lesið Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Viðskipti innlent Óskar úr fjarskiptum í fiskinn Viðskipti innlent Sögulegur hagnaður á samrunatímum Viðskipti innlent Slugsagjöldin „neyðarúrræði“ og „ekki til að græða“ Neytendur Óskar eftir starfslokum Viðskipti innlent Stækka hótelveldið á Suðurlandi Viðskipti innlent Grunur um listeríu í vinsælum ostum Neytendur Lægri tollar á samkeppnisríkin veiki stöðuna svo um munar Viðskipti innlent Besti fjórðungurinn í sögu Alvotech Viðskipti innlent Íslensku KFC-feðgarnir í Danmörku gjaldþrota Viðskipti erlent Fleiri fréttir Gervigreindin geti verið lykillinn að tollalækkun Besti fjórðungurinn í sögu Alvotech Sögulegur hagnaður á samrunatímum Óskar úr fjarskiptum í fiskinn Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Lægri tollar á samkeppnisríkin veiki stöðuna svo um munar Atvinnuleysi eykst hægt með lækkandi sól Almannatenglar stofna fjölmiðil Lánshæfið hækkar úr stöðugu í jákvætt Fleiri ferðamenn og fleiri utanlandsferðir Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Stækka hótelveldið á Suðurlandi Óskar eftir starfslokum „Ekkert Viking eða Gull“ á nýjum stað í B5 Segir ofboðslegan undirliggjandi þrýsting á fasteignamarkaði Reikna með að skila hagnaði á næsta ári Frá Gamma til Arctica og nú Seðlabankans Atvinnuleysi 2,8 prósent í júní Trump-tollarnir hafa tekið gildi Ísland klemmist á milli í alþjóðlegu tollastríði Vonbrigði með makrílinn en síldin og loðnan veki von Ráðin framkvæmdastjóri Magio – viðburðasmiðju Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Sjá meira