Gengi krónunnar stöðugt á yfirstandandi ársfjórðungi 14. desember 2009 11:58
Gengi krónu hefur fremur lítið breyst það sem af er síðasta fjórðungi ársins og flökt á gengi evru gagnvart krónu hefur verið með minnsta móti, þrátt fyrir að inngrip Seðlabankans á gjaldeyrismarkaði hafi engin verið síðan í fyrstu viku nóvembermánaðar. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þasr segir að engin viðskipti hafa orðið á millibankamarkaði með gjaldeyri frá opnun markaðar í morgun þegar þetta er ritað (kl. 11:00) og er gengi evru gagnvart krónu því óbreytt frá föstudegi. Greiningin segir það athyglisvert í ljósi þess að síðastliðinn fimmtudag var vaxtagjalddagi á ríkisbréfaflokknum RIKB 10 1210, þar sem erlendir fjárfestar áttu ríflega 50 milljarða kr. í októberlok samkvæmt Markaðsupplýsingum Lánamála ríkisins. „Við teljum að vaxtagreiðslur til útlendinga vegna þessa gjalddaga gætu numið allt að 4 milljörðum kr., en svo miklar vaxtagreiðslur af ríkistryggðum bréfum hafa ekki fallið þeim í skaut í einum mánuði síðan í júní síðastliðnum," segir í Morgunkorninu. „Krónan veiktist um hálft prósent á föstudaginn og teljum við útflæði vegna vaxtagreiðslunnar líklega orsök þessa. Evran kostar nú 184 kr. og hefur krónan lækkað um 1,6% gagnvart evru frá upphafi októbermánaðar". Fram kemur að gera megi því skóna að hertar reglur Seðlabankans um færslur króna milli innlendra og erlendra reikninga hafi átt sinn þátt í að aftra frekari veikingu krónu undanfarnar vikur. Frá því gjaldeyrishöftin voru heft með þessum hætti hafa viðskipti á aflandsmarkaði nánast þurrkast upp vegna lítillar eftirspurnar eftir krónum. Samkvæmt vef Deutsche Bank er aflandsgengi evrunnar nú á bilinu 270-300 kr, eftir því hvort ætlunin er að kaupa eða selja evrur fyrir krónur. Lengst af þessu ári var gengi evru gagnvart krónu hins vegar á bilinu 200-220 á aflandsmarkaðinum. Í þessu felst að einhverjir þeirra aðila sem áður keyptu krónur á aflandsmarkaði eru nú væntanlega tilneyddir til að eiga þau viðskipti á innlendum gjaldeyrismarkaði, sem léttir Seðlabankanum lífið í viðleitni sinni við að ná fram stöðugleika á gengi krónu. Það sem af er desembermánuði hefur velta á millibankamarkaði með gjaldeyri verið með allra minnsta móti, og dæmi eru um 3ja daga tímabil engrar veltu. Það segir þó ekki alla söguna um gjaldeyrisviðskipti hérlendis, þar sem bankarnir þrír sem að millibankamarkaði standa leita ekki inn á hann nema verulegur munur sé milli gjaldeyrisinnstreymis og -útflæðis hjá einhverjum þeirra. Ef hert höft hafa leitt til betri heimta á gjaldeyristekjum yfir í krónur kemur af sjálfu sér að bankarnir hafa síður þörf fyrir gjaldeyriskaup á millibankamarkaðinum og því þarf Seðlabankinn síður að hlaupa undir bagga með framboð gjaldeyris á þeim markaði. „Fróðlegt verður hins vegar að fylgjast með hversu mikil áhrif vaxtagjalddagans í síðustu viku verða á gjaldeyrismarkaðinn. Í júní síðastliðnum greip Seðlabankinn til mestu inngripa í einum mánuði það sem af er árinu og seldi evrur fyrir jafnvirði 2,5 milljarða kr., væntanlega í því skyni að draga úr gengisfalli krónu vegna gjaldeyrisútstreymis tengdu vaxtagjalddögum þá," segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Stígur til hliðar vegna „ólíkrar sýnar“ á breytingar Viðskipti innlent Davíð nýr framkvæmdastjóri áfangastaða hjá Arctic Adventures Viðskipti innlent Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Viðskipti innlent Segir búið að „dauðadæma Vefjuna“ vegna ummæla Reynis Viðskipti innlent Hótar þrjátíu prósenta tolli á ESB Viðskipti erlent Selja Lagarfoss með tæplega hálfs milljarðs tapi Viðskipti innlent Íbúðum í byggingu fækkar Viðskipti innlent Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna Viðskipti innlent Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Viðskipti innlent Gleymdi að skrá sig úr stæðinu og því rukkuð um 48 þúsund Neytendur Fleiri fréttir Stígur til hliðar vegna „ólíkrar sýnar“ á breytingar Davíð nýr framkvæmdastjóri áfangastaða hjá Arctic Adventures Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Íbúðum í byggingu fækkar Selja Lagarfoss með tæplega hálfs milljarðs tapi Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Raunverð íbúða hefur þrefaldast frá aldamótum Atli Óskar ráðinn rekstrarstjóri framleiðslu Engin U-beygja hjá Play Veitingamenn verulega óánægðir með eftirlitið Hindranir í vegi þess að lífeyrissjóðirnir taki þátt í hernaðaruppbyggingu Evrópu Spá umtalsverðum samdrætti í byggingu nýrra íbúða Falsaði fleiri bréf Veltir því upp hvort eigendum hafi verið refsað fyrir að tjá sig Hætta við yfirtökuna Harpa og Linda ráðnar forstöðumenn Stærsti samruninn í áraraðir á borð Samkeppniseftirlitsins Sylvía Kristín ráðin forstjóri Nova Íslenskur pítsastaður í Kína: „Það verður skrítnara og skrítnara að segja frá þessu“ Farþegum til landsins fjölgaði um tuttugu prósent Kvika hafi grætt töluvert á því að hafna upphaflegum tilboðum „Sem betur fer eru aðrir fiskar í sjónum“ Arion og Kvika í samrunaviðræður Eyþór hættur sem framkvæmdastjóri Hopp Svona munu stækkuð Skógarböð og hótel líta út Skrautleg saga laganna hans Bubba Sætta sig ekki við höfnun Kviku Sjá meira