Enski boltinn

Man. City vill fá Tevez

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Carlos Tevez.
Carlos Tevez. Nordic Photos/Getty Images

Slagurinn um þjónustu Argentínumannsins Carlos Tevez er í fullum gangi. United vill halda honum og svo er vitað af áhuga bæði Liverpool og Man. City á framherjanum.

United á forkaupsrétt á leikmanninum en félagið hefur hingað til ekki viljað greiða uppsett verð fyrir leikmanninn.

Man. City er það félag sem er talið líklegast til þess að greiða uppsett verð enda synda eigendur City í seðlum á krepputímum.

„Carlos Tevez er góður leikmaður. Ef góðir leikmenn eru á lausu þá hafa knattspyrnustjórar eðlilega áhuga," sagði Mark Hughes, stjóri Man. City, sem er nýbúinn að kaupa Gareth Barry frá Aston Villa.

Af City er það einnig að frétta að Daniel Sturridge er væntanlega á förum frá félaginu en Chelsea hefur áhuga á þessum 19 ára strák.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×