Innlent

Hörður Torfa lenti í orðaskaki við fundargesti

Nú er lokið vikulegum mótmælafundi á Austurvelli. Lögregla áætlar að um tvöþúsund manns hafi verið á mótmælunum en skipuleggjendurnir segja á bilinu fjögur til fimm þúsund hafi mótmælt. Hörður Torfason sem staðið hefur fyrir fundunum lenti í orðaskaki við fundargesti þegar hann bað hóp manna að taka niður lambhúshettur sem huldu andlit þeirra.

Ræðumenn fundarins voru þau Halldóra Guðrún Ísleifsdóttir, kennari og grafiskur hönnuður, og Einar Már Guðmundsson rithöfundur.

Dagný Dimmblá, 8 ára skólastelpa ávarpaði einnig fundinn og má segja að hún hafi stolið senunni. Dagný vildi að boðað yrði til kosninga og furðaði sig á því hversvegna þingmenn væru alltaf í fríi.

Yfirskrift fundarins var sem fyrr „Breiðfylking gegn ástandinu" en þetta var þrettándi mótmælafundurinn í röð.

Nánar verður fjallað um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×