Enski boltinn

Campbell orðaður við Man. Utd

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Bresku slúðurblöðin greina frá því í dag að Sir Alex Ferguson íhugi að fá Sol Campbell til liðs við Man. Utd þar sem nánast allir varnarmenn liðsins eru meiddir.

United neyddist til þess að nota miðjumennina Michael Carrick og Darren Fletcher í miðvarðarstöðunum í Meistaradeildinni í gær.

Hinn 35 ára gamli Campbell er laus allra mála hjá Notts County og án samnings þannig að hann gæti byrjað að spila um áramótin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×