Viðskipti innlent

ÍLS keypti safn skuldabréfa af Byr

Í júní var undirritaður samningur milli Íbúðalánasjóðs (ÍLS) og Byrs sparisjóðs um kaup á safni skuldabréfa tryggðu með veði í íbúðarhúsnæði að fjárhæð um 2,7 milljarðar króna.

Fjallað er um kaupin í mánaðarskýrslu ÍLS. Þar segir að kaupin séu gerð í samræmi við heimild til slíkra kaupa skv. lögum, reglugerð og reglum Íbúðalánasjóðs um kaup á skuldabréfum fjármálafyrirtækja.

Íbúðalánasjóður greiddi 79% af uppreiknuðu virði safnsins með afhendingu íbúðabréfa úr flokki HFF150644 að fjárhæð kr. 1.7 milljarða kr. að nafnverði. Eftirstöðvarnar, eða 21%, er krafa Byrs sparisjóðs á Íbúðalánasjóð sem mun verða gerð upp að 8 árum liðnum.

Byr sparisjóði er óheimilt að lána eða selja ofangreind íbúðabréf á eftirmarkaði og einungis heimilt að nota íbúðabréfin í veðlánaviðskiptum við Seðlabanka Íslands.

Kjósi Byr sparisjóður að selja íbúðabréfin skuldbindur hann sig til að skipta sölu bréfanna niður á 3 ár þannig að hámarksfjárhæð bréfa sem heimilt er að selja á hverju ári, fyrst á árinu 2010, sé 1/3 af nafnverðsfjárhæð afhentra bréfa.

Jafnframt áskilur Íbúðalánasjóður sér rétt á árinu 2009 til að skipta ofangreindum íbúðabréfum út fyrir bréf úr nýjum flokki íbúðabréfa sem stofnaður verður á árinu, þannig að uppreiknuð staða bréfanna við skiptin jafngildi markaðsvirði bréfanna úr flokkunum á skiptadegi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×