Viðskipti innlent

Magma Energy veitir Orkuveitu Reykjavíkur frest fram til 31. ágúst

Magma Energy hefur veitt Orkuveitu Reykjavíkur frest fram til 31. ágúst klukkan 17 til að svara tilboði félagsins í hlut Orkuveitu Reykjavíkur í HS Orku.

Borgarstjóri og formaður borgarráðs fóru ásamt stjórnendum Orkuveitu Reykjavíkur á fund fjármálaráðherra í gær til að ræða hugsanleg kaup ríkisins á hlut Orkuveitunnar.

Hugmyndir um að þessi eignarhlutur færi í eign einkaaðila hefur mætt töluverðri andstöðu að undanförnu.






Tengdar fréttir

Tilboð Magma Energy er allt of mikil áhætta með of litlum tryggingum

„Tilboð Magma Energy í HS Orku er allt of mikil áhætta með of litlum tryggingum en einungis hlutir í Hitaveitu Suðurnesja eru að veði fyrir fyrir lokagreiðslum Magma Energy í HS Orku. Þá hafa þessir einkaaðilar haft sjö ár til að greiða sér arð, færa til eignir eftir hentugleikum en það er engin trygging fyrir því að verðmæti veðanna í HS Orku haldi verðgildi sínu," segir Sigrún Elsa Smáradóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar. Hún segir Reykjanesbæ hafa samið af sér.

Lífeyrissjóðir taki þátt í kaupum á HS Orku

Ríki og sveitarfélög hafa mikla hagsmuni af því að arður af auðlindum á borð við jarðvarma á Suðurnesjum verði eftir í landinu, segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra. Hann vill ekki að hlutur Orkuveitu Reykjavíkur í HS Orku verði seldur einka­aðilum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×