Viðskipti innlent

Rösjö stofnar vogunarsjóð til fjárfestinga á Íslandi

Norski fjármálamaðurinn Endre Rösjö hefur stofnað vogunarsjóð í samstarfi við annan norskan fjárfesti en ætlunin er að nota sjóðinn m.a. til fjárfestinga á Íslandi.

Þetta kemur fram í blaðinu Finansavisen en þar er þess getið að Rösjö hafi oft áður komið að stofnun norskra félaga. Með honum að stofnun fyrrgreinds sjóðs er verðbréfasalinn Morten Kielland.

Finansavisen segir að þeir tveir ætli sér að afla tveggja milljarða norskra kr., eða um 44 milljarða kr., í sjóðinn en síðan er ætlunin að skrá hann í kauphöllina í Osló.

Rösjö segir í samtali við blaðið að þeir ætli sér að byrja með nokkur hundruð milljóna norskra kr. en byggja svo sjóðinn upp í 2 milljarða norskra kr. „Hluti af sjóðnum verður notaður í uppbyggingarsjóð fyrir Ísland," segir Röjsö. „Það verkefni verður komið á laggirnar snemma á næsta ári."

Eins og kunnugt er af fréttum stóð til um tíma að Rösjö keypti 15% hlut í MP Banka en af þeim viðskiptum varð ekki.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×