Skoðun

100 daga áætlunin

Heiðar Már Árnason og Sindri Snær Einarsson skrifar

Þegar þetta er skrifað eru 47 dagar liðnir frá því að 100 daga áætlun ríkisstjórnarinnar var kynnt og sumarið gengið í garð. Okkur hjá Sambandi íslenskra framhaldsskólanema þykir því tímabært að líta um öxl og sjá hverju hefur verið áorkað með hagsmuni þeirra sem á framhaldsskólaaldri eru að leiðarljósi.

Fyrst ber að nefna að framhaldsskólanemendur eru aðeins nefndir einu sinni í 100 daga áætluninni og þar segir: „Sköpuð verði ný atvinnutækifæri fyrir ungt fólk t.d. með því að efla Nýsköpunarsjóð námsmanna og ýta úr vör sumarverkefnum fyrir framhaldsskólanema."

Þessari klausu hefur verið framfylgt að hluta til þar sem nýsköpunarsjóður námsmanna hefur verið styrktur um 15 milljónir. En námskröfur þar eru þess valdandi að einungis háskólanemar geta sótt um. Hvað framhaldsskólanema varðar hefur einni milljón verið varið í úrræði og hafa þeir peningar verið nýttir í verkefnið Samfélagið Frumkvæði en upplýsingar um það má nálgast á vefsíðunni www.frumkvaedi.is. Það er fagnaðarefni að verkefni sem sprettur frá grasrótinni skuli fá stuðning en hver eru næstu skref?

Ætla ráðamenn þessa lands að vera ábyrgir fyrir því brottfalli sem verður úr framhaldsskólum sökum félagslegrar einangrunar og að fjárhagslegir örðugleikar geri ungu fólki ókleift að sækja það nám sem það óskar eftir? Hvað á að gera við þær þúsundir ungmenna sem nú ráfa stefnulaust um götur borgarinnar?

Höfundar standa bak við Samfélagið Frumkvæði og eru í framkvæmdastjórn Sambands íslenskra framhaldsskólanema.






Skoðun

Skoðun

Afruglari

Þórður Björn Sigurðsson skrifar

Skoðun

Blaður 35

Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar

Sjá meira


×