Aukinn kostnaður við velferðarmál nemur 25 milljörðum á árinu Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 12. ágúst 2009 20:15 Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, í ræðustól Alþingis
Kostnaður við velferðarkerfið hefur aukist um meira en 25 milljarða á þessu ári. Þetta kom fram í svari Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra, við fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, þingmanni Sjálfstæðisflokksins. Guðlaugur lagði fyrirspurn fyrir á þingfundi í dag þar sem hann spurði um áætlaðan kostnað við ýmis verkefni, þar á meðal viðbætur við velferðarkerfið samkvæmt stjórnarsáttmálanum, endurskoðun framfærslugrunns LÍN og fleira. Í svari fjármálaráðherra kom fram að við núverandi aðstæður í ríkisfjármálum væri ekki staða til að auka útgjöld til velferðarmála, en reynt verði að standa vörð um velferðarkerfið með ýmsum leiðum. Þannig sé það eindreginn ásetningur stjórnvalda að standa vörð um atvinnuleysistryggingkerfið, en útgjöld til hans aukast um 22 millarða á þessu ári til viðbótar við hækkun síðasta árs. Þeirri aukningu hafi verið reynt að mæta með því að hækka tryggingagjald. Þá hafi aukinn kostnaður vegna vaxtabótagreiðslna numið rúmum 2,3 milljörðum og milljarði vegna húsaleigubóta. Einnig hefur hækkun frítekjumarks ellilífeyrisþega um tíu þúsund krónur orsakað aukin útgjöld upp á sjö hundruð milljónir. Efling ráðgjafarstofu heimilanna hafi útheimt 40 milljóna útgjaldahækkun. Þá verði 100 milljónum til viðbótar varið til eflingar símenntunar og fullorðinsfræðslu á næsta ári. Ráðherra sagði ekki til um hversu miikill kostnaður fylgdi endurskoðun framfærslugrunns LÍN, en sagði þó í skoðun að draga úr þeim mun sem er á atvinnuleysisbótum og framfærslulánum.
Mest lesið Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Lögregla klippti á plöturnar Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent Fleiri fréttir Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Veðrið haggist ekki að neinu ráði Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Bílvelta í Skötufirði Tímafrek verkefni kennara, umferðaröryggi í Hvalfirði og stemningin á Spáni Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Lögregla klippti á plöturnar Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Slasaðist alvarlega við heyskap Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Sjá meira