Viðskipti innlent

Eignir Atorku ekki seldar, hlutafé fært niður

Eignir Atorku Group verða ekki seldar í bráð og hlutafé verður fært niður að kröfu lánadrottna að því er segir í tilkynningu frá félaginu.

„Undanfarna mánuði hafa átt sér stað viðræður um möguleika á fjárhagslegri endurskipulagningu Atorku Group. Sérfræðingar hafa lagt mat á virði eignasafns Atorku og líklega þróun verðmætis þess á næstu árum.," segir í tilkynningunni.

„Niðurstöður þeirra staðfesta að skynsamlegt sé að vinna áfram að því að hámarka virði eigna Atorku á næstu árum. Fyrir liggur hins vegar að eigið fé félagsins telst neikvætt.

Hafa lánardrottnar félagsins því gert kröfu um að hlutafé núverandi hluthafa verði fært niður, samhliða yfirtöku á félaginu á grundvelli nauðasamninga."










Fleiri fréttir

Sjá meira


×