Hald lagt á 700 kannabisplöntur í þremur húsleitum 12. mars 2009 18:37
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lagt hald á 700 kannabisplöntur í þremur húsleitum undanfarna daga. Talið er að málin tengist. Lögreglan stöðvaði kannabisræktun í íbúð í Vesturberginu fyrir nokkrum dögum. Það var svo í gær að lögreglan gerði upptækt umtalsvert magn af kannabisplöntum í íbúð við Skipasund. Nágrannar sem fréttastofa hefur rætt við sögðu að magnið hefði verið það mikið að það hefði fyllt heilan flutningabíl. Þá hefði kannabislykt lagt yfir götuna. Í tilkynningu frá Lögreglu í dag kom fram að um 400 plöntur hafi verið haldlagðar í þessum tveimur húsleitum. Í fyrradag var einnig framkvæmd húsleit í húsnæði við Eldshöfða. Þar var lagt hald á rúmlega þrjúhundruð plöntur og tveir menn handteknir. Lögreglan rannsakar nú hvort að það tengist hinum málunum tveimur. Samkvæmt heimildum fréttastofu beinist rannsóknin aðallega að manni á fimmtugsaldri en hann og sambýliskona hans voru handtekinn á Keflavíkurflugvelli í gærkvöld. Þá var maður á sextugsaldri einnig handtekin og er hann grunaður um að hafa haft yfirumsjón með ræktuninni. Konan er skráður eigandi íbúðarinnar í Vesturberginu og félag í eigu sambýlismanns hennar er skráð fyrir íbúðinni í Skipasundinu. Skýrslutökur fóru fram í nótt og var áframhald á þeim í dag. Öllum hefur verið sleppt úr haldi og er gæsluvarðhalds ekki krafist. Fólkið segist saklaust og að íbúðirnar hafi verið í útleigu. Það hafi því verið tilviljun að kannabisræktun hafi verið í gangi í þeim báðum.
Mest lesið Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Innlent Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Innlent Hafði komið sér í fyrir á háalofti hótels Innlent Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Erlent Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Kuldaskil á leið yfir landið Veður Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Innlent Fleiri fréttir Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér í fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Sjá meira