Erlent

Segja Biden fallinn í sama far og Bush

Joe Biden, varaforseti Bandaríkjanna.
Joe Biden, varaforseti Bandaríkjanna.

Ummæli Joe Biden, varaforseta Bandaríkjanna, þess efnis að efnahagserfiðleikar Rússa geri þá eftirgefanlegri í samningum við Bandaríkin um ýmis öryggismál, virðast hafa farið fyrir brjóstið á Rússum.

Ummælunum var slegið upp á forsíðum flestra stórblaða Rússlands, sem spurðu meðal annars hvort Barack Obama ráði í raun ferðinni í samskiptunum við Rússland.

„Joe Biden var óvænt kominn aftur í sömu kappræðuklækina og Bush-stjórnin,“ sagði í einu blaðanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×