Innlent

Földu 4 kíló af gervifíkniefnum í rjóðri

Pakki sem fimmmenningarnir töldu hafa að geyma tæp fjögur kíló af amfetamíni var sóttur í vöruhús Samskipa.
Pakki sem fimmmenningarnir töldu hafa að geyma tæp fjögur kíló af amfetamíni var sóttur í vöruhús Samskipa.
Ríkissaksóknari hefur ákært fimm menn á tvítugs- og þrítugsaldri fyrir að hafa reynt að smygla til landsins nær fjórum kílóum af amfetamíni. Hinir ákærðu eru Jóhann Páll Jóhannesson, Jón Sveinbjörn Jónsson, Logi Már Hermannsson, Þorgrímur Kolbeinsson og Þorsteinn Birgisson.

Fíkniefnin voru falin í málningarfötum og þeim komið fyrir í pakka sem var póstlagður í Danmörku 6. ágúst. Pakkinn var haldlagður af lögreglunni í Danmörku 11. sama mánaðar, fíkniefnin fjarlægð og gerviefnum komið fyrir í staðinn. Pakkinn var sendur til Íslands í kjölfarið. Fimmmenningarnir stóðu allir í þeirri trú að að pakkinn innihéldi fíkniefni.

Logi er ákærður fyrir að hafa skipulagt og fjármagnað innflutning fíkniefnanna og að hafa skipt verkum með hinum þremur. Hann fékk Þorgrím til að fara til Danmerkur, sækja fíkniefnin hjá óþekktum manni, pakka þeim og senda til Íslands gegn 300 þúsunda króna greiðslu fyrir verkið. Þá fékk Logi þá Jóhann Pál og Þorstein til að taka á móti fíkni­efnunum, opna pakkann og geyma þau þar til þau yrðu sótt.

Þorgrímur skipulagði innflutning fíkniefnanna ásamt Loga. Hann fékk Jón Sveinbjörn til þess að sækja pakkann í vöruhús Samskipa að Kjalarvogi 7 til 15 í Reykjavík. Jón Sveinbjörn fékk pakkann tollafgreiddan og flutti í rjóður við Skarhólabraut í Mosfellsbæ, skildi hann eftir þar, en kom svo aftur 9. sama mánaðar ásamt Jóhanni Páli og Þorsteini og vísaði þeim á pakkann.

Þorsteinn sótti hann að Skarhólabraut ásamt Jóhanni Páli og Jóni Sveinbirni og flutti hann í Rauðumýri í Mosfellsbæ ásamt Jóhanni Páli. Frá Rauðumýri flutti Jóhann Páll svo pakkann heim til sín að Flatahrauni 29 í Hafnarfirði þar sem hann hugðist geyma fíkniefnin uns Logi tæki við þeim á ný. Jóhann Páll var handtekinn af lögreglu þegar hann var að fjarlægja efnin úr pakkanum.

Jón Sveinbjörn er jafnframt ákærður fyrir vörslur amfetamíns sem lögreglumenn fundu við húsleit.

Loks er Þorgrímur ákærður fyrir að hafa haft í ófullnægjandi geymslu haglabyssu af gerðinni Benelli og riffil af gerðinni Norinco 22 cal LR. Vopnin voru bæði hlaðin og fundust á bak við kommóðu við húsleit lögreglu.

jss@frettabladid.is



Fleiri fréttir

Sjá meira


×