Þak á innheimtukostnað gildir ekki um skuldir í lögheimtu 26. maí 2009 12:15
Þak sem sett var á innheimtukostnað í byrjun ársins gildir ekki um skuldir sem komnar eru til lögfræðings í lögheimtu. Sagt var frá því um helgina að ógreiddur reikningur sjúklings vegna skoðunar á Landspítalanum nær þrefaldaðist eftir að lögfræðistofa rukkaði tólf þúsund krónur í innheimtukostnað. Sjúklingurinn sagði þetta gjörsamlega siðlaust. Upphaflegi reikningurinn lá ógreiddur hjá sjúklingnum í sjö mánuði en fyrir læknisskoðunina átti hann að greiða tæpar átta þúsund krónur. Eftir að innheimtubréf barst frá Lögmannssstofu Jóns Egilssonar og Auðar Bjargar Jónsdóttur í síðustu viku var skuldin komin í 21.700 krónur með kostnaði. Jón Egilsson lögmaður sagði í samtali við fréttastofu að lögmannsstofum væri heimilt að innheimta kostnað, enda gildi reglugerð sem Björgvin Sigurðsson fyrrverandi viðskiptaráðherra setti í janúar um hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar aðeins um innheimtuviðvörun og milliinnheimtu. Með reglugerðinni er því þannig fyrir komið að þak er á kostnaði sem hægt er að leggja á viðvaranir og milliinnheimtu og gefa skuldaranum samtals fimm tækifæri til að greiða skuld sína áður en umtalsverður kostnaður bætist við. Ef hins vegar skuldarinn hunsar þessi tækifæri og skuldin er send til lögfræðings í lögheimtu er ekkert þak á innheimtukostnaði. Þá gildir gjaldskrá lögmannsstofa og er hún frjáls. Sjálfur kveðst Jón nota lægri taxta en gjaldskrá stofu hans leyfir þegar innheimtar eru svo lágar skuldir.
Mest lesið „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Innlent „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent Fleiri fréttir Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Sjá meira