Viðskipti innlent

Hluthafafundur Alfesca haldinn 12. ágúst

Stjórn Alfesca hefur ákveðið að boða til hluthafafundar á Hilton Reykjavík Nordica, miðvikudaginn 12. ágúst kl. 17:00.

Í tilkynningu segir að á dagskrá fundarins verða tekin fyrir eftirtalin mál:

1. Yfirtökutilboð Lur Berri Iceland ehf. til hluthafa Alfesca hf., dagsett 25. júní 2009, fyrirhuguð afskráning hlutabréfa Alfesca hf. af aðallista NASDAQ OMX Iceland hf. og umræður um verðmöt á hlutabréfum félagsins.

2. Önnur mál, löglega framborin.

Fundurinn fer fram á ensku. Fundargögn liggja frammi á skrifstofu félagsins viku fyrir hluthafafund.

Tillögur frá hluthöfum sem bera á fram á hluthafafundi skulu komnar í hendur stjórnar eigi síðar en 7 sólahringum fyrir fund til þess að þær verði teknar til umræðu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×