Týndi hundinum sínum í kerfinu Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 7. júlí 2009 13:55 Hundurinn Mjölnir.
Marvin Michelsen, tvítugur Reykvíkingur, hefur undanfarinn mánuð gert örvæntingarfulla leit að hundinum sínum, Mjölni. Ótrúleg atburðarás varð til þess að Mjölnir endaði í höndunum á nýjum eigendum sem Marvin veit ekki hverjir eru. Þannig er mál með vexti að Marvin þurfti að fara á sjúkrahús og bað vinkonu sína að passa Mjölni fyrir sig á meðan. Það vildi ekki betur til en svo að hundurinn slapp út á meðan vinkonan bar innkaupapoka inn í hús. Marvin telur líklegt að hundurinn hafi farið að leita sín, enda mjög húsbóndahollur. Mjölni tókst þó ekki ætlunarverkið, heldur var hirtur upp af lögreglunni og vistaður á hundahótelinu að Leirum. Marvin hringdi á hundahótelið og sagðist ekki geta sótt hundinn fyrr en hann útskrifaðist af spítalanum. Í millitíðinni var Mjölnir hins vegar gefinn nýrri fjölskyldu í samræmi við vinnureglur sveitarfélaganna um flökkuhunda og þegar Marvin kom að vitja hans var hundurinn fjarri góðu gamni. Síðan þá hefur Marvin leitað hans logandi ljósi, en hvorki fengið svör frá Leirum né Reykjavíkurborg um afdrif hvutta. Þegar fréttastofa hafði samband við Leirur fengust þau svör að útilokað væri að breyta orðnum hlut úr þessu eða gefa upp hverjir hinir nýju eigendur eru. Eins og nærri má geta saknar Marvin félaga síns mikið. „Ég var að horfa á hundamyndina Bolt um daginn og ég fékk sting í hjartað - yfir teiknimynd! Ég gat ekki annað en hugsað um hundinn minn," segir Marvin í samtali við fréttastofu. Marvin hefur nú opnað Facebooksíðu undir yfirskriftinni Mjölni skilað þar sem hann biðlar til fólks um að hjálpa sér að finna Mjölni, sem er svartur labrador-boxer blendingur. Alls hafa 4.512 manns skráð sig í hópinn og bætist stöðugt í.
Mest lesið Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Innlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Innlent Fleiri fréttir Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Þorgerður beygði af í Bítinu Segir Katrínu sparka í konuna sína Sjá meira