Verkefni Jónasar og Tinds notað í frumkvöðlakeppni Stígur Helgason skrifar 8. ágúst 2009 06:00 Tindur Jónsson hlaut árið 2006 sex ára fangelsisdóm fyrir tilraun til manndráps.
Efnafræðineminn Tindur Jónsson, annar þeirra sem ákærður er í amfetamínverksmiðjumálinu í Hafnarfirði, fór upphaflega að vinna fyrir hinn sakborninginn, Jónas Inga Ragnarsson, með það í huga að aðstoða hann við að framleiða eldvarnarefni. Honum þótti verkefnið svo vænlegt til árangurs að hann tók þátt í frumkvöðlakeppni hjá fyrirtækinu Innovit út á það. Þetta er meðal þess sem fram kemur í greinargerð verjanda Tinds, sem lögð var fram í Héraðsdómi Reykjaness í vikunni. Í greinargerðinni segir enn fremur að Tindur hafi viljað ljúka afplánun dóms, sem hann hlaut fyrir sveðjuárás, á áfangaheimilinu Vernd. Til þess hefði hann þurft vinnu og engin önnur vinna hafi staðið til boða en sú hjá Jónasi Inga. Mennirnir neita báðir að hafa ætlað að framleiða amfetamín í verksmiðju sem upprætt var í iðnaðarhverfi í Hafnarfirði í fyrrahaust. Sérfræðingur Europol hefur sagt að verksmiðjan hafi verið ein sú fullkomnasta sem hann hafi séð, og að úr upphafs- eða milliefnunum sem fundust á vettvangi hefði mátt framleiða um 353 kíló af amfetamíni.Jónas Ingi Ragnarsson hlaut árið 2004 tveggja og hálfs árs dóm í líkfundarmálinu svokallaða.Í greinargerðum verjendanna Sveins Andra Sveinssonar og Brynjars Níelssonar segir að hvorugur maðurinn hafi haft í hyggju að framleiða amfetamín. Jónas Ingi hafi vitað að það væri hægt, en Tindur ekki haft hugmynd um það. Auk þess hafi hvergi fundist önnur nauðsynleg efni til amfetamínframleiðslu. Segir í greinargerð Sveins að Jónas Ingi hafi ætlað að framleiða milliefnið P-2-P úr upphafsefninu P-2-NP með aðstoð Tinds. Hann hafi síðan ætlað að selja milliefnið á svörtum markaði. Framleiðsla þess sé ekki ólögmæt nema ef sannað þykir að það hafi verið ætlað til fíkniefnaframleiðslu, en það hafi Jónas ekkert vitað um. Hátt í tonn af mjólkursykri sem fannst á staðnum, og lögregla telur að hafi verið ætluð sem íblöndunarefni til drýgingar amfetamínsins, breyti engu þar um enda hafi Jónas stundað sölu á ýmsum efnum sem hefði mátt drýgja fíkniefni með.Verksmiðjan fullkomna. Sérfræðingur Europol hefur sjaldan séð annað eins.Þá er gerð athugasemd við ætlað magn amfetamíns sem segir í ákæru að hefði mátt framleiða úr upphafs- og milliefnunum. Kílóin 353 séu miðuð við vel drýgt og veikt amfetamín en réttilega ætti að miða við hreint amfetamín, og líklega hefði einungis mátt framleiða fjórtán slík kíló úr efnunum miðað við 50 prósenta afrakstur. Aðalmeðferð í málinu fer fram í byrjun september.
Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Sjö ára dómur Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Innlent Nálgist neyðarástand Innlent Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Innlent Fleiri fréttir Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Fyrirtækjum og stofnunum berast sprengjuhótanir Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Sjá meira