Benitez kemur Mascherano til varnar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 23. mars 2008 17:04 Rafael Benitez reynir að róa Javier Mascherano niður. Nordic Photos / Getty Images
Rafael Benitez, stjóri Liverpool, sagði að Javier Mascherano hafi verið beittur óréttlæti þegar hann var rekinn af velli í leiknum gegn Manchester United í dag. „Það kom Mascherano á óvart að fá seinna gula spjaldið því hann hélt að hann hafði ekki sagt neitt rangt,“ sagði Benitez. „Ryan Babel heyrði það sem fór á milli hans og dómarans og það eina sem Mascherano gerði var að spyrja af hverju Fernando Torres fékk gult spjald.“ Torres hafði fengið gult eftir að brotið hafði verið á honum og Liverpool dæmd aukaspyrna. Torres mótmælti því að fá ekki meira úr krafsinu og í kjölfarið gaf Steve Bennett dómari honum gult. Það var þá sem Mascherano hljóp upp að dómaranum. Mascherano missti stjórn á skapinu í kjölfarið og varð Benitez að róa hann niður. „Hann brást við eins og hann gerði vegna þess að þetta kom honum á óvart - ég reyndi að segja honum að róa sig. Hins vegar hefði hann aldrei átt að hlaupa upp að dómaranum.“ „Eftir rauða spjaldið var leikurinn gjörbreyttur,“ sagði Benitez en staðan þá var 1-0 og fyrri hálfleik að ljúka. United bætti við tveimur mörkum í seinni hálfleik og vann því 3-0.
Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Körfubolti Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Í skýjunum eftir sögulegan sigur: „Þetta var dýrðardagur“ Íslenski boltinn Hljóp á hraðasta tíma ársins Sport Fleiri fréttir Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Arsenal sagt hafa áhuga á því að kaupa Vinícius Júnior United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Sjá meira