Tvö síðbúin mörk hjá Tottenham Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 22. mars 2008 14:38 Dimitar Berbatov skoraði fyrir Tottenham í fyrri hálfleik en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Nordic Photos / AFP
Tottenham bar í dag sigurorð af Portsmouth á heimavelli, 2-0, með mörkum varamannanna Darren Bent og Jamie O'Hara. Hermann Hreiðarsson lék allan leikinn í liði Portsmouth. Jermaine Jenas átti við smávægileg meiðsli að stríða og kom Tom Huddlestone á miðju Tottenham í hans stað. Þá tók Michael Dawson stöðu Ledley King í vörninni. Jermain Defoe mátti ekki spila með Portsmouth gegn sínum gömlu félögum og tók því Kanu stöðu hans í sókninni. En alls voru sex breytingar gerðar á liði Portsmouth frá síðasta leik en Hermann Hreiðarsson var í stöðu miðvarðar í dag, við hlið Silvain Distin. Það er kalt í veðri í Englandi í dag og snjóaði þegar flautað var til leiks í Lundúnum. Heimamenn virtust mæta ferskari til leiks en Dimitar Berbatov kom boltanum í markið eftir um hálftíma leik eftir stungusendingu Robbie Keane. Hann er þó dæmdur rangstæður en sá dómur stóð afar tæpt í endursýningum. Michael Dawson átti síðan gott skot að marki skömmu síðar en boltinn hafnaði í slánni. Tottenham fékk fleiri færi í fyrri hálfleik en það besta átti Sean Davis, leikmaður Portsmouth, en Paul Robinson varði vel frá honum í marki heimamanna. Svipað var upp á teningnum í seinni hálfleik. Aaron Lennon átti fína rispu snemma í hálfleiknum en skot hans fór farm hjá marki gestanna. Portsmouth fékk sitt besta færi þegar að Kanu náði að skalla yfir Paul Robinson, markvörð Tottenham, en Didier Zokora náði að bjarga á síðustu stundu. En ísinn brotnaði loksins á 80. mínútu. Sóknarmenn Tottenham skiptust á að reyna að skjóta að marki sem endaði með því að Dimitar Berbatov átti misheppnað skot að marki en virkaði sem fyrirtaks sending á Darren Bent. Hann skallaði laglega í markið. Upp úr miðjunni náði Tottenham boltanum strax aftur og þrumað fram á Darren Bent. Hann gerði sér lítið fyrir og stakk Hermann Hreiðarsson af, lagði boltann fyrir markið þar sem Jamie O'Hara kom aðvífandi og skilaði knettinum í netið. Þar með voru úrslitin ráðin en Portsmouth missti þar með ef til vill endanlega af fimmta sæti deildarinnar en Everton er nú sex stigum á undan Portsmouth og á leik til góða. Tottenham er enn í ellefta sæti deildarinnar en er nú fjórum stigum á eftir West Ham í stað sjö.
Mest lesið Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Dagskráin í dag: Hvaða lið fellur úr Bestu deildinni? Sport Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Formúla 1 Haukar halda sigurgöngunni áfram Handbolti Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Fótbolti Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Handbolti Danmörk - Portúgal 2-4 | Portúgal vann þrátt fyrir fjarveru Ronaldo Fótbolti KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Handbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira