Hvernig væri að einbeita sér að Torres? 21. mars 2008 16:59
Rafa Benitez hefur eðlilega verið spurður mikið að því hvernig hann ætli að stöðva Cristiano Ronaldo þegar kemur að leik Liverpool og Manchester United á sunnudaginn. Benitez sneri út úr þessum spurningum í samtali við The Sun í dag. "Hver er lykillinn að því að stöðva Ronaldo? Kannski er þetta frekar spurning um hver lykillinn sé að því að stöðva Fernando Torres," sagði Benitez, en spænski framherjinn hefur verið í fantaformi undanfarið líkt og Ronaldo. "Auðvitað er Ronaldo að spila vel - en það er Torres að gera líka. Samvinna þeirra Torres og Steven Gerrard hefur verið frábær í framlínunni og menn verða að eiga við þá til að ráða við okkur. Torres er að spila mjög vel núna en hann er ungur og á aðeins eftir að verða betri," sagði Benitez. Torres var keyptur til Liverpool á yfir 20 milljónir punda síðasta sumar en hefur heldur betur skilað sínu og er búinn að skora 27 mörk fyrir þá rauðu í öllum keppnum. Ronaldo hefur verið enn heitari og er búinn að skora 33 mörk í öllum keppnum fyrir Manchester United, sem er ótrúlegt í ljósi þess að hann spilar ekki sem framherji. Hann hefur skorað gegn öllum liðunum í úrvalsdeildinni nema Chelsea og Liverpool. Það er því ljóst að sviðsljósið mun beinast að þessum tveimur á páskadag.
Enski boltinn Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Enski boltinn Fleiri fréttir Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Sjá meira