Fjórða jafnteflið í röð hjá Arsenal 15. mars 2008 19:15 NordcPhotos/GettyImages
Arsenal slapp með skrekkinn á heimavelli sínum Emirates í dag þegar það náði aðeins 1-1 jafntefli gegn Middlesbrough í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Það var fyrrum Arsenal-maðurinn Jeremie Aliadiere sem kom Boro á bragðið eftir snarpa sókn í fyrri hálfleik og þannig var staðan í hálfleik. Arsenal var fjarri því sannfærandi í leiknum en náði með mikilli baráttu að jafna leikinn á 78. mínútu. Þar var að verki varnarmaðurinn Kolo Toure sem skallaði hornspyrnu í varnarmann, þaðan í markvörðinn og í netið. Mjög klaufalegt hjá liðsmönnum Middlesbrough. Aðeins nokkrum mínútum síðar var varamanninum Mido vikið af leikvelli fyrir karatespark á Gael Clichy og við það jókst pressa heimamanna enn á mark Boro. Þeir náðu hinsvegar ekki að tryggja sér sigur og urðu að sætta sig við fjórða jafnteflið í röð og hafa hlotið jafn mörg stig og Manchester United á toppi deildarinnar. Middlesbrough má vel við una enda er liðið það eina í deildinni sem hefur náð að vinna Arsenal í deildinni í vetur. Það er hætt við því að leikmenn Arsenal muni naga sig í handabökin í sumar ef til þess kemur - eftir að hafa aðeins náð í eitt stig af sex mögulegum gegn Boro í deildinni.
Enski boltinn Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Sjá meira