Ferð ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins til Írans umdeild 5. mars 2008 18:51
Ferð ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins til Írans um síðustu helgi kemur nefndarmönnum í utanríkismálanefnd Alþingis á óvart. Heimildarmenn innan stjórnarráðsins hafa áhyggjur af neikvæðum áhrifum heimsóknarinnar á framboð Íslands til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Um síðustu helgi heimsótti Grétar Már Sigurðsson ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu Írana heim og fundaði hann meðal annars með Monouchehr Mottaki utanríkisráðherra Írana. Íranska ríkisfréttastofan IRNA greindi heimsókninni og var þar sem meðal annars er haft eftir Grétari að Íslendingar meti tengsl og samskipti sín við Íran mikils. Fréttastofa hafði samband við nefndarmenn í utanríkismálanefnd Alþingis í dag vegna heimsóknarinnar og vissu sumir þeirra ekki af ferðinni þegar haft var samband við þá. Nokkrir nefndarmannanna sem rætt var við sögðu ferðina kom á óvart enda þætti þeim tilgangur samskiptanna við írönsk stjórnvöld óljós - svo og hvort að heimsóknin gæti að einhverju leyti haft neikvæð áhrif á framboð Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Írönsk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd mjög fyrir kjarnorkuáætlun sína en í byrjun vikunnar samþykkti Öryggisráð sameinuðu þjóðanna ályktun um nýjar refsiaðgerðir gegn Írönum til að knýja þá til að hætta að auðga úran til framleiðslu kjarnorku. Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri-grænna á sæti í utanríkismálanefnd Alþingis hann telur æskilegt að nefndin hefði verið látin vita af heimsókninni áður en hún var farin þar sem Íslendingar hafi þarna sent út sinn háttsettasta embættismann og aðstæður séu mjög viðkvæmar. Grétar Már sagði í samtali við fréttastofu í dag að heimsóknin hefði verið farin til að athygli á kostum Íslendinga í tengslum við framboð Íslands til öryggisráðsins. Hann segir viðræðurnar hafa verið þess eðlis að ekki hafi þurft að bera ferðina undir utanríkismálanefnd. Ekki náðist í Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur utanríkisráðherra í dag vegna málsins.
Mest lesið Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Innlent „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Innlent Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi Innlent „Það kostar peninga að afla peninga“ Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Erlent Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Innlent Fleiri fréttir Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í Miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Viðbrögð við sláandi PISA-könnun Ísland sé með rauða spjaldið í námsárangri barna „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Kynntu þingmálaskrá vetrarins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sjá meira
Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu