Ísland viðurkennir sjálfstæði Kósóvó 5. mars 2008 17:30
Íslensk stjórnvöld hafa formlega viðurkennt sjálfstæði Kósóvó. Var það gert í bréfi sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra sendi Hashim Thaci forsætisráðherra Kósósvó í morgun. Hún hefur ennfremur tilkynnt serbneskum yfirvöldum um málið. „Við væntum þess að Kósóvó sýni í verki fulla virðingu fyrir mannréttindum og réttindum minnihlutahópa, eins og það hefur skuldbundið sig til í sjálfstæðisyfirlýsingunni," sagði Ingibjörg Sólrún en hún er stödd í Brussel þar sem hún á fimmtudag mun sitja fund utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins og alþjóðaráðstefnu kvenleiðtoga um aðkomu kvenna að friðar og öryggismálum. Í bréfinu leggur hún áherslu á að Kósóvó sé lýðveldi margra þjóða og mikilvægt sé að það hafi jafnræði og réttarvernd allra að leiðarljósi. Þetta sé í anda friðaráætlunar Martti Ahtisaaris, sáttasemjara Sameinuðu þjóðanna, en yfirvöld í Kósóvó hafa heitið því að framfylgja áætluninni. Kósóvó lýsti yfir sjálfstæði 17. febrúar sl. í kjölfar árangurslausra samningaviðræðna um framtíð Kósóvó, er fram fóru undir stjórn Ahtisaaris. Utanríkisráðherra sagði mikilvægt að áfram yrði unnið að því að ná samkomulagi um framtíð Kósóvó sem öll aðildarríki Sameinuðu þjóðanna gætu við unað. Þá væri áframhaldandi uppbyggingarstarf alþjóðastofnana í Kósóvó mikilvægt, en Íslendingar leggja sitt af mörkum til þess. Á vegum Íslensku friðargæslunnar fer Íslendingur fyrir skrifstofu Evrópuráðsins í Kósóvó, auk þess sem fulltrúar UNIFEM standa að verkefnum þar og í nágrannaríkjunum og Flugmálastjórn hefur eftirlit með gæðamálum flugvallarins í höfuðborginni Pristína.
Mest lesið Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Innlent Buxnalaus Lalli olli glundroða Innlent Fleiri fréttir Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Sjá meira