Góður sigur Íslands á Póllandi Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 5. mars 2008 15:03 Dóra María (10) og Margrét Lára (9) skoruðu mörk Íslands í dag.
Ísland vann í dag sigur á Póllandi í fyrsta leik liðsins á Algarve Cup á Portúgal. Dóra Stefánsdóttir og Margrét Lára Viðarsdóttir skoruðu mörk leiksins í síðari hálfleik. Leiknum lauk því með 2-0 sigri Íslands. Eftir því sem kemur fram á heimasíðu KSÍ var Ísland hættulegri aðilinn í leiknum. Margrét Lára átti gott færi strax í upphafi leiks en pólski markvörðurinn varði vel frá henni. Þá átti Katrín Jónsdóttir skalla rétt yfir markið og Dóra átti einnig skot að marki sem markvörður Póllands varði. Staðan í hálfleik var því markalaus en Dóra skoraði mark Íslands á 58. mínútu. Margrét Lára lagði boltann fyrir hana og skoraði Dóra í kjölfarið með skoti utan vítateigs. Margrét Lára skoraði svo sjálf síðara markið eftir að hafa komist ein í gegnum vörn Pólverja. Markið kom á 81. mínútu en skömmu áður hafði hún átt skot í stöng en af stönginni hrökk boltinn til Rakelar Hönnudóttur sem skaut einnig í stöng. Varamaðurinn Sara Björk Gunnarsdóttir komst einnig í gott færi en markvörður Póllands varði vel frá henni. Sú nýbreytni var í leiknum að sex dómarar störfuðu við hann. Aukadómararnir tveir voru staðsettir fyrir aftan sitt hvort markið og einbeittu sér að brotum innan vítateigs. Þetta kerfi verður svo notað á öllum leikjum á HM U20-landsliða kvenna sem fer fram í Chile síðar á árinu.
Fótbolti Mest lesið Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Handbolti Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Enski boltinn „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Fótbolti Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka Körfubolti UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Fótbolti Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Fótbolti Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt Fótbolti Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Handbolti Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Fótbolti Sá rautt eftir nokkrar sekúndur: „Maður lætur muna eftir sér“ Handbolti Fleiri fréttir Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Tókust á í beinni um atvikið umdeilda upp á Skaga Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Létu leikmenn og stjórn Stjörnunnar heyra það: „Skandall, fáránlegt og ljótt“ Sjáðu sjö marka veisluna í sigri Fram Kópavogi í gær Kom inn á fyrir KR aðeins 14 ára „Maður var aldrei alveg rólegur“ Uppgjörið: Breiðablik - Fram 3-4 | Fram kláraði dæmið í fyrri hálfleik Ágúst Orri mættur í hollensku úrvalsdeildina Hræðileg nýting Blika í hornum: „Eins og þetta sé ekkert æft“ „Fæ skítinn í fangið strax frá fyrsta degi“ Átta marka veisla í fyrsta leik Eiðs Smára og Víkingsvélin mallar áfram Uppgjörið: Víkingur - Valur 2-0 | Frábærar tíu mínútur voru nóg í Víkinni Kvaddi stuðningsmenn Víkings: „Það er hluti af mér núna“ „Aron er frábær leikmaður en ég vil samt fá meira frá honum“ Uppgjörið: KA - KR 3-5 | Aron með þrennu fyrir norðan „Fiðringurinn breyttist smá í að kúgast annað slagið“ Haukar komnir upp í Lengjudeildina Uppgjörið: ÍA - FH 1-1 | Jafnt á Skaganum Uppgjörið: Keflavík - ÍBV 1-0 | Keflvíkingar tengdu saman sigra í fyrsta skipti í sumar Uppgjörið: Stjarnan - Þór 4-2 | Stjarnan sýndi sparihliðarnar með nýja menn við stjórnvölinn Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Húsvíkinga Ísfirðingar geta andað léttar HK vann enn einn heimaleikinn og Fylkir flengdi Grindavík Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans „Kærkomið að fá eitt svona mark“ „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Sjá meira