Enski boltinn

Aston Villa vann Reading

Elvar Geir Magnússon skrifar
Aston Villa fékk þrjú stig í dag.
Aston Villa fékk þrjú stig í dag.

Aston Villa heldur áfram í baráttu sinni fyrir fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Liðið vann í dag 2-1 sigur á útivelli gegn Reading sem er í vondri stöðu í fallsæti.

Gareth Barry misnotaði vítaspyrnu áður en Ashley Young kom Villa yfir eftir skyndisókn. Reading færði sig framar á völlinn í þeirri von að ná að jafna en fékk það í bakið þegar Marlon Harewood kom Villa tveimur mörkum yfir.

Nicky Shorey minnkaði muninn fyrir Reading í uppbótartíma en það kom of seint. Þetta var fyrsta mark Reading síðan 12. janúar.

Ívar Ingimarsson hóf leikinn á bekknum en kom inn sem varamaður þegar um tuttugu mínútur voru til leiksloka.

Aston Villa er með 47 stig líkt og Liverpool og Everton en þessi lið eru í 4. - 6. sæti deildarinnar. Reading er hinsvegar í þriðja neðsta sæti með stigi minna en Birmingham.

Klukkan 15:00 hefst leikur Blackburn og Bolton og er hann í beinni útsendingu á Sýn 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×