Handbolti

Nokkrar staðreyndir um handbolta í Þýskalandi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Markverðir þýska landsliðsins fagna heimsmeistaratitlinum í fyrra.
Markverðir þýska landsliðsins fagna heimsmeistaratitlinum í fyrra. Nordic Photos / Bongarts

Ísland mætir í dag heimsmeisturum Þjóðverja á EM í handbolta. Af því tilefni tekur Vísir saman nokkrar staðreyndir um Þýskaland og handboltann þar í landi.

Í leiknum mætast landsliðin frá næstfjölmennasta landinu sem á fulltrúa á EM og því fámennasta. Íslenskir ríkisborgarar eru rúmlega 300 þúsund en þýskir rúmlega 82 milljónir.

Báðar þjóðir þurfa nauðsynlega að vinna leikinn í dag. Þjóðverjar halda enn í vonina um að komast í undanúrslit og þótt það virðist fjarlægur draumur fyrir Íslendinga í dag á liðið í harðri samkeppni um að komast í undankeppni Ólympíuleikanna.

Þjóðverjar eru ríkjandi heimsmeistarar og líklega ein mesta hindrunin sem Ísland þarf að fara yfir á þessu móti. Strákarnir hafa þegar fallið á tveimur hindrunum, þeirri sænsku og frönsku.

Þeir eru þó fáir sem geta bókað þýskan sigur í dag enda fáir sem efast um þá hæfileika sem býr í íslenska liðinu. Engu að síður er athyglisvert að velta fyrir sér nokkrum staðreyndir um handknattleiksíþróttina í Þýskalandi.

Það má einnig benda á þá staðreynd, þó það kunni að vera ósanngjarn samanburður, að Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari getur valið úr ellefu íslenskum leikmönnum í þýsku úrvalsdeildinni en Heiner Brand, landsliðsþjálfari getur valið úr 159 leikmönnum í deildinni.

- Þýska úrvalsdeildin er sennilega sú sterkasta í heimi. Aðeins spænska deildin getur veitt henni einhverja samkeppni.

- Þýsk félagslið eru ríkjandi meistarar í þremur stærstu Evrópukeppnunum:

Meistaradeild Evrópu: THW Kiel

EHF-bikarkeppnin: SC Magdeburg

Evrópukeppni bikarhafa: HSV Hamburg

- Kiel vann þar að auki þýsku deildina og þýsku bikarkeppnina í vor.

- Þýsk lið hafa oftast fagnað sigri á Evrópumótunum í handknattleik, samtals 43 sinnum.

- Þýsk lið hafa oftast orðið sigurvegarar í Evrópukeppni meistaraliða og síðar Meistaradeild Evrópu, samtals fimmtán sinnum.

- Þýsk lið hafa oftast orðið Evrópumeistarar bikarhafa, þrettán sinnum.

- Þýsk lið hafa unnið EHF-bikarkeppnina níu sinnum á undanförnum ellefu árum.

- Þýska landsliðið er eitt fárra sem hefur orðið heimsmeistari, Evrópumeistari og Ólympíumeistari.

- Þýskaland hefur þrívegis orðið heimsmeistari, 1938, 1978 og 2007.

- Þýskaland hefur tvívegis orðið í öðru sæti á HM (1954 og 2003) og einu sinni í þriðja sæti (1958).

- Þýskaland hefur einu sinni orðið Evrópumeistari, árið 2004.

- Þýskaland hefur eini sinni orðið í öðru sæti á EM (2002) og einu sinni í þriðja sæti (1998)

- Þýskaland hefur tvívegis orðið Ólympíumeistari, 1936 og 1980.

- Þýskaland hefur tvisvar fengið silfur á ÓL, 1984 og 2004.

Það má svo benda á það í lokin að Ísland hefur aldrei komist á verðlaunapall á stórmóti í handknattleik en tvívegis komist í undanúrslit. Í fyrra skiptið á Ólympíuleikunum í Barcelona árið 1992 og í það seinna á EM í Svíþjóð árið 2002. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×