Viðskipti innlent

Straumur setti tæpa tvo milljarða inn í XL á síðustu vikum

William Fall er forstjóri Straums.
William Fall er forstjóri Straums.
Straumur fjárfestingabanki setti tæpa tvo milljarða íslenskra króna inn í XL Leisure Group á síðustu vikum til þess að reyna að halda félaginu á floti. Þetta kemur fram í breska blaðinu The Guardian í dag. Þar segir að Straumur, sem á kröfu í XL upp á tæpa sex milljarða íslenskra króna, hafi reynt að kaupa fyrirtækinu tíma til þess að endurfjármagna sig en að allt hafi komið fyrir ekki. Fyrirtækið var lýst gjaldþrota í gærmorgun.


Tengdar fréttir

Gjaldþrot XL hefur áhrif á afkomu Eimskips

Eimskip segir í tilkynningu til Kauphallar Íslands vegna gjaldþrots XL Leisure Group í Bretlandi að ábyrgð Eimskipafélagsins vegna Jointrace Ltd, móðurfélags XL, muni falla á félagið og þá um leið hafa áhrif á efnahag og afkomu Eimskips.

West Ham og West Brom spila án auglýsinga

Enska úrvalsdeildarfélagið West Ham mun leika í ómerktum treyjum þegar það mætir West Brom í deildinni á morgun. Breska sjónvarpið segir að samstarfi West Ham og ferðaskrifstofunnar XL hafi verið slitið.

Tap á XL samsvarar framlagi ríkisins til háskóla

Upphæðin sem Eimskip tapaði á eign sinni í XL samsvarar öllum framlögum ríkisins til háskóla landsins og stæði að auki undir framlögum til dómstólanna og öryggismála ríkisins. Landsbankinn treystir því að ekki sé von á fleiri fýlusprengjum vegna ævintýralegra fjárfestinga félagsins. Verð hlutabréfa í Eimskipum féllu um 21% í dag.

Forstjóri XL segist eyðilagður maður yfir örlögum félagsins

Phil Wyatt forstjóri XL Leisrue segir að hann sé eyðilagður maður yfir örlögum félagsins. Á blaðamannafundi sem hann efndi til í morgun til að greina frá málinu átti Wyatt erfitt að halda aftur af tárunum að sögn blaðsins The Times.

XL Leisure gjaldþrota

Breski ferðaheildsalinn XL Leisure er gjaldþrota eftir því sem heimildir Vísis herma. Félagið er að einhverju leyti í eigu Íslendinga.Þeirra á meðal er Magnúsar Stephensen. Ekki náðist í Magnús við vinnslu þessarar fréttar.

Krafa Straums á XL nærri sex milljarðar króna

XL Leisure Group plc. hefur óskað eftir greiðslustöðvun eftir að reynt hafði verið til þrautar um alllangt skeið að koma við fjárhagslegri endurskipulagningu fyrirtækisins. Straumur-Burðarás fjárfestingabanki hf. hefur átt gott starfstarf við XL um árabil og þykir miður að ekki skyldi takast að leysa þann vanda sem fyrirtækið stóð frammi fyrir.

Breskur veðbanki tapaði stórt á gjaldþroti XL Leisure

Breski veðbankinn Paddy Powers tapaði stórt á gjaldþroti XL Leisure Group. Raunar var ásóknin í að veðja á gjaldþrotið svo mikil að veðbankinn neyddist til að loka fyrir frekari veðmál síðdegis í gær.

XL Leisure Group í þrot

Ferðaskrifstofan XL Leisure Group í Bretlandi er gjaldþrota og mun Eimskip þar með bera ábyrgð á 27 milljarða króna láni sem það gekk í ábyrgð fyrir við sölu XL í október 2006.

Björgólfsfeðgar tilbúnir með 26 milljarða lán til að bjarga Eimskip

Feðgarnir Björgólfur Guðmundsson og Björgólfur Thor Björgólfsson fara fyrir hópi fjárfesta sem er tilbúinn til að veita Eimskip víkjandi lán að upphæð um 26 milljarðar fari svo að ábyrgð vegna XL Leisure Group falli á félagið eins og líkur eru á samkvæmt tilkynningu sem það sendi Kauphöllinni fyrir skömmu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×