Viðskipti erlent

Forstjóri XL segist eyðilagður maður yfir örlögum félagsins

Phil Wyatt forstjóri XL Leisrue segir að hann sé eyðilagður maður yfir örlögum félagsins. Á blaðamannafundi sem hann efndi til í morgun til að greina frá málinu átti Wyatt erfitt að halda aftur af tárunum að sögn blaðsins The Times.

Wyatt viðurkennir að það muni verða gífurlega erfitt verkefni að koma öllum þeim farþegafjölda heim aftur sem nú eru strandaðir víða um heiminn vegna gjaldþrots XL. Fjöldi þeirra nemur 67.000 manns að sögn Wyatt.

Alls voru 21 farþegavél á vegum XL kyrrsett af breskum flugmálayfirvöldum í nótt og segir Wyatt það á ábyrgð þessara yfirvalda að farþegarnir komast ekki heim til sín í augnablikinu.

Að sögn Times nema heildarskuldir XL yfir 32 milljörðum kr. og eru lánadrottnarnir að stærstum hluta Landsbankinn, Straumur og Barclays.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×