XL Leisure gjaldþrota 11. september 2008 22:31 West Ham þarf væntanlega að finna sér nýjan auglýsanda framan á búning félagsins eftir gjaldþrot XL Leisure.
Breski ferðaheildsalinn XL Leisure er gjaldþrota eftir því sem heimildir Vísis herma. Félagið er að einhverju leyti í eigu Íslendinga.Þeirra á meðal er Magnúsar Stephensen. Ekki náðist í Magnús við vinnslu þessarar fréttar. Gjaldþrot XL Leisure, sem er þriðja stærsta ferðaskrifstofa Bretlands á eftir Tui Travel og Thomas Cook, hefur víðtæk áhrif. Allar vélar félagsins, sem eru 21, hafa verið stöðvaðar en óljóst er hversu margir farþegar verða fyrir óþægindum eða hreinlega tapa ferðum sem þeir hafa keypt. Samkvæmt vef breska blaðsins The Times er um að ræða þúsundir Breta. Stjórnarformaður XL Leisure er Magnús Þorsteinsson, fyrrverandi stjórnarformaður Eimskips og skráður eigandi stærsta einstaka hlutarins í Eimskip. XL Leisure hefur verið mikið í fréttum að undanförnu enda hefur Eimskip verið í ábyrgð fyrir 27 milljarða láni sem Landsbankinn veitti núverandi eigendum félagsins þegar það var keypt af Eimskip síðla árs 2006. Í fyrradag var tilkynnt að feðgarnir Björgólfur Guðmundsson og Björgólfur Thor Björgólfsson, sem fara með tæp 40% hlut í Eimskip í gegnum eignarhaldsfélög sín og Landsbankann, hefðu tekið yfir ábyrgð Eimskips í formi víkjandi láns. Líklegt þykir að því láni verði breytt í hlutafé í Eimskip og þeir feðgar eignist félagið með húð og hári. XL Leisure er einnig einn helsti styrktaraðili enska úrvalsdeildarliðsins West Ham og auglýsir framan á búningum þess. Eigandi West Ham er Björgólfur Guðmundsson. XL Leisure Group skuldbatt sig í sumar til að greiða 2,5 milljónir punda, um 425 milljónir króna en útlit er fyrir að þeir peningar skili sér ekki. Straumur á nokkurra hagsmuna að gæta gagnvart XL Leisure og herma heimildir Vísis að bankinn þurfi að afskrifa nokkra milljarða vegna gjaldþrotsins.
Mest lesið Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Bora eftir jarðhita á Tenerife Viðskipti erlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira