Jón Arnór óskar eftir fullri höll í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. maí 2008 16:28 Jón Arnór í leik með Lottomatica Roma. Nordic Photos / AFP
Jón Arnór Stefánsson er í viðtali á heimasíðu Lottomatica Roma fyrir þriðja leik liðsins gegn Air Avellino í kvöld. Jón Arnór og félagar eru á heimavelli og komast í lokaúrslitin um ítalska titilinn á móti Montepaschi Siena með sigri. Lottomatica-liðið hefur unnið tvo fyrstu leiki einvígisins, 68-63 á heimavelli og 85-78 á útivelli í síðasta leik. "Við erum búnir að sýna mikinn karakter og núna vonumst við til að fá fulla höll," segir Jón Arnór við heimasíðu Lottomatica en Palalottomatica-höllin tekur 10.500 manns. Á heimasíðunni er fólki ráðlægt að kaupa miða í forsölu til að forðast langar raðir í kvöld. "Við erum búnir að spila góða vörn en við vorum alltof linir í upphafi síðasta leiks," segir Jón Arnór en Lottomatica var átta stigum undir, 26-18, eftir fyrsta leikhlutann í síðasta leik. "Við komum sterkir til baka, fórum að spila grimmari og ákveðnari varnarleik og fengum í kjölfarið fullt af auðveldum körfum. Við vorum að spila við erfiðar aðstæður á erfiðum útivelli en sýndum mikinn karakter og núna vonast ég til þess að fólkið fjölmenni og hjálpi okkur til þess að komast í úrslitin," segir Jón Arnór í þessu spjalli á heimasíðunni. Það má finna viðtalið við Jón Arnór hér. Jón Arnór hefur reyndar verið ískaldur í sókninni í þessum tveimur leikjum og aðeins náð að skora samtals 5 stig á 34 mínútum en hann hefur meðal annars klikkað á 10 af 11 þriggja stiga skotum sínum. Jón Arnór á enn eftir að brjóta tíu stiga múrinn í úrslitakeppninni og það er vonandi að hann finni körfuna í þessum mikilvæga leik í kvöld.
Körfubolti Mest lesið Paragvæ sló út dapurt þýskt lið Fótbolti Eiginkona og tvö börn fótboltamanns létust Fótbolti Keflavík sækir liðsstyrk Körfubolti Styðja þétt við bak Gakpo eftir áfallið mikla Fótbolti Stórsigur Aftureldingar og hrun Ægis Fótbolti Fá góðar móttökur í Dallas Sport Helgi Sigurðsson: ,,Mér fannst við vinna þennan leik mjög sanngjarnt” Fótbolti Hermann látinn taka pokann sinn Fótbolti „Þetta er ekki kallað fótbolti heldur peningabolti“ Fótbolti Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Enski boltinn Fleiri fréttir Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Sjá meira