Erlent

Ár liðið frá hvarfi Madeleine

Óli Tynes skrifar
Madeleine McCann var rænt af hótelherbergi foreldra sinna í bænum Praia de Luz í Portúgal nokkrum dögum áður en hún varð fjögurra ára gömul.

Hvarf hennar vakti heimsathygli og hennar hefur verið leitað um allan heim.

Portúgalska lögreglan virðist enn engu nær um hvarf hennar. Foreldrar telpunnar og breskur maður hafa verið formlega lýst grunuð um hvarf hennar, en öll neita sök.

Miklar tröllasögur voru á kreiki meðan rannsóknin stóð sem hæst og sérstaklega þóttu portúgalskir fjölmiðlar óvægnir í umfjöllun sinni um foreldrana.

Rannsóknardeild portúgölsku lögreglunnar lak eins og sía og þaðan bárust margar furðulegar fréttir sem áttu ekki við nein rök að styðjast.

Það hefur vakið gremju íbúa portúgalska smábæjarins að ferðaskrifstofur eru farnar að bjóða í skoðunarferðir að hótelinu þar sem hún hvarf, og ferðamenn láta taka myndir af sér þar fyrir framan.

Sérstök guðsþjónusta helguð Madeleine verður haldin í kirkju í Praia de Luz í dag, og í heimabæ hennar í Englandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×