Vinur Geirs gefur 280 milljónir 18. september 2008 18:00
Stofnskrá nýs styrktarsjóðs, sem kenndur er við Watanabe, var undirrituð af stofnandanum Toshizo Watanabe og Kristínu Ingólfsdóttur, rektor Háskóla Íslands, við hátíðlega athöfn í Háskóla Íslands í dag. Geir H. Haarde forsætisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra voru viðstödd athöfnina, ásamt fjölda gesta. Stofnframlag Watanabe til sjóðsins er þrjár milljónir Bandaríkjadala, um 280 milljónir íslenskra króna. Tilgangur Styrktarsjóðs Watanabe við Háskóla Íslands er að veita styrki til skiptináms í Japan og á Íslandi, bæði nemendum í grunnnámi og framhaldsnámi, auk þess að stuðla að samvinnu vísindamanna og gagnkvæmum skiptum. Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, færði Watanabe sérstakar þakkir fyrir einstakt örlæti og velvild í garð Háskóla Íslands við þetta tilefni. Í ávarpi sínu sagði hún að sjóðurinn yrði gríðarlega mikilvægur fyrir tengsl Íslands og Japans í framtíðinni og veitti stúdentum og vísindamönnum einstakt tækifæri. Sjóðurinn væri Háskólanum jafnframt ómetanleg hvatning við að ná öndvegismarkmiðum sínum. Þessi rausnarlega peningagjöf væri skýrt dæmi um þau ómetanlegu áhrif sem einstaklingur gæti haft, en ekki síður bæri hún vitni um gildi þeirra vináttutengsla sem efnt er til á háskólaárum. Toshizo Watanabe nam við Brandeis háskólann í Waltham, Massachusetts í Bandaríkjunum og var þar skiptinemi. Þaðan hlaut hann BS-gráðu í stjórnmálafræði árið 1973. Watanabe brautskráðist síðan með MBA-gráðu frá Pepperdine háskólanum í Kaliforníu í Bandaríkjunum, árið 1992. Í framhaldinu varð hann stjórnarformaður, forstjóri og eigandi Nikken-fyrirtækisins sem hefur höfuðstöðvar í Bandaríkjunum. Watanabe sat á skólabekk með Geir H. Haarde forsætisráðherra í Bandaríkjunum og tókst með þeim ágæt vinátta sem haldist hefur fram á þennan dag. Toshizo Watanabe og Geir Haarde forsætisráðherra varð tíðrætt um vináttuna og gildi hennar í ávörpum sínum í dag. Þeir slógu á létta strengi þegar þeir rifjuðu upp námsárin, en þeir deildu meðal annars saman herbergi í einn vetur. Forsætisráðherra vitnaði í fornbókmenntir Íslendinga þegar hann lauk máli sínu, á þá lund að þótt gjafir Watanabe væru vissulega góðar þá væri vinátta hans enn verðmætari. Styrktarsjóði Watanabe við Háskóla Íslands er ætlað að veita íslenskum og japönskum stúdentum sama tækifæri til náms og Watanabe gafst og stuðla jafnframt að aukinni velvild á milli Japans og Íslands. Stjórn sjóðsins til næstu þriggja ára skipa Eri Watanabe, forstjóri Watanabesjóðsins í Bandaríkjunum, Ingimundur Sigfússon, fyrrum sendiherra Íslands í Japan og Már Másson, prófessor við HÍ, sem útskrifaðist með doktorspróf í líftækni frá Tokyo Institute of Technology í Japan. Már verður stjórnarformaður sjóðsins.
Mest lesið „Við getum gert það sem við viljum“ Erlent „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Innlent Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Innlent Kom ekki á teppið Innlent Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Innlent Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Innlent Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Innlent Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni Innlent Halla slær á putta handboltahetjunnar Innlent „Ég á þetta og má þetta“ Innlent Fleiri fréttir Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Kom ekki á teppið Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Willum fer ekki fram og styður Lilju Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Magnea vill hækka sig um sæti Vissu ekki af kynferðisbrotinu fyrr en lögreglan hafði samband Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Laugarnestangi friðlýstur sem menningarlandslag Mesti fjöldi í sögu bráðamóttökunnar Leita manns vegna kynferðisbrots við Austurbæjarbíó Sósíalistar sendu nær allar tekjur í félög tengdum fyrri stjórn Mætast í Pallborðinu á lokasprettinum Kafað í óbirta og umtalaða skýrslu um Félagsbústaði Rannsóknaskipin gera hlé á loðnuleit vegna óveðurs Viðreisn býður fram undir merkjum Samfylkingar Þrjú erlend her- og varðskip í Reykjavík Ósammála um hvort lögregla hafi gefið fyrirmæli „Ég á þetta og má þetta“ „Það er ekki hægt að muna allan þennan djöful“ Nauðgaði konu og reyndi að færa henni blóm daginn eftir Hvalveiðimótmælin fyrir dóm og Danir segja ekkert samið um Grænland Húsleit fór fram víðar en á Akureyri Halla slær á putta handboltahetjunnar „Ég framkvæmdi þetta af algjörri nauðsyn“ „Sama hvað gerist þá sigra hvalirnir“ Sjá meira