Nokkrar staðreyndir um handbolta í Þýskalandi Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 22. janúar 2008 11:51 Markverðir þýska landsliðsins fagna heimsmeistaratitlinum í fyrra. Nordic Photos / Bongarts
Ísland mætir í dag heimsmeisturum Þjóðverja á EM í handbolta. Af því tilefni tekur Vísir saman nokkrar staðreyndir um Þýskaland og handboltann þar í landi. Í leiknum mætast landsliðin frá næstfjölmennasta landinu sem á fulltrúa á EM og því fámennasta. Íslenskir ríkisborgarar eru rúmlega 300 þúsund en þýskir rúmlega 82 milljónir. Báðar þjóðir þurfa nauðsynlega að vinna leikinn í dag. Þjóðverjar halda enn í vonina um að komast í undanúrslit og þótt það virðist fjarlægur draumur fyrir Íslendinga í dag á liðið í harðri samkeppni um að komast í undankeppni Ólympíuleikanna. Þjóðverjar eru ríkjandi heimsmeistarar og líklega ein mesta hindrunin sem Ísland þarf að fara yfir á þessu móti. Strákarnir hafa þegar fallið á tveimur hindrunum, þeirri sænsku og frönsku. Þeir eru þó fáir sem geta bókað þýskan sigur í dag enda fáir sem efast um þá hæfileika sem býr í íslenska liðinu. Engu að síður er athyglisvert að velta fyrir sér nokkrum staðreyndir um handknattleiksíþróttina í Þýskalandi. Það má einnig benda á þá staðreynd, þó það kunni að vera ósanngjarn samanburður, að Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari getur valið úr ellefu íslenskum leikmönnum í þýsku úrvalsdeildinni en Heiner Brand, landsliðsþjálfari getur valið úr 159 leikmönnum í deildinni. - Þýska úrvalsdeildin er sennilega sú sterkasta í heimi. Aðeins spænska deildin getur veitt henni einhverja samkeppni. - Þýsk félagslið eru ríkjandi meistarar í þremur stærstu Evrópukeppnunum:Meistaradeild Evrópu: THW KielEHF-bikarkeppnin: SC MagdeburgEvrópukeppni bikarhafa: HSV Hamburg - Kiel vann þar að auki þýsku deildina og þýsku bikarkeppnina í vor. - Þýsk lið hafa oftast fagnað sigri á Evrópumótunum í handknattleik, samtals 43 sinnum. - Þýsk lið hafa oftast orðið sigurvegarar í Evrópukeppni meistaraliða og síðar Meistaradeild Evrópu, samtals fimmtán sinnum. - Þýsk lið hafa oftast orðið Evrópumeistarar bikarhafa, þrettán sinnum. - Þýsk lið hafa unnið EHF-bikarkeppnina níu sinnum á undanförnum ellefu árum. - Þýska landsliðið er eitt fárra sem hefur orðið heimsmeistari, Evrópumeistari og Ólympíumeistari. - Þýskaland hefur þrívegis orðið heimsmeistari, 1938, 1978 og 2007. - Þýskaland hefur tvívegis orðið í öðru sæti á HM (1954 og 2003) og einu sinni í þriðja sæti (1958). - Þýskaland hefur einu sinni orðið Evrópumeistari, árið 2004. - Þýskaland hefur eini sinni orðið í öðru sæti á EM (2002) og einu sinni í þriðja sæti (1998) - Þýskaland hefur tvívegis orðið Ólympíumeistari, 1936 og 1980. - Þýskaland hefur tvisvar fengið silfur á ÓL, 1984 og 2004. Það má svo benda á það í lokin að Ísland hefur aldrei komist á verðlaunapall á stórmóti í handknattleik en tvívegis komist í undanúrslit. Í fyrra skiptið á Ólympíuleikunum í Barcelona árið 1992 og í það seinna á EM í Svíþjóð árið 2002.
Mest lesið Leik Frakklands á HM í kvöld gæti verið frestað Fótbolti Skítabrögð Paragvæja stöðvuðu ekki Frakka Fótbolti Heimsmeistarinn ætlar að slá brautarmetið Sport Dagurinn hans Ounahi og Marokkó fyrst í átta liða úrslit Fótbolti Baulað á enska landsliðið Fótbolti „Ég kom fram og mamma var grátandi“ Sport ÍBV-Valur 1-0 | Alex Freyr í aðalhlutverki í enn einum Eyjasigri Íslenski boltinn Grænhöfðaeyjar grátlega nálægt því að senda heimsmeistarana heim Fótbolti Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Körfubolti Brautarmet féllu hvert á fætur öðru í Dyrafjallahlaupinu Sport Fleiri fréttir Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Sjá meira