Innlent

Sonur minn er heppinn að vera á lífi

Atvikið var tekið upp á myndband.
Atvikið var tekið upp á myndband.

Móðir drengsins sem varð fyrir fólskulegri árás samnemenda sinna í Njarðvíkurskóla í síðustu viku segir að sonur sinn sé heppinn að vera á lífi. Hún fordæmir einstaklinginn sem tók árásina upp á myndband og dreifði á netinu.

Myndband af árásinni hefur farið sem eldur í sinum um internetið. Drengurinn sem varð fyrir árásinni hefur náð sér að mestu leyti af meiðslunum sem hann hlaut en andlega á hann enn langt í land með að jafna sig. Helena Norris, móðir drengsins ræddi við fréttamann Stöðvar 2.

Hún segir meðal annars að sonur hennar sé hepinn að halda heilsu eftir árásina og að foreldrar drengjanna sem hluta eiga að máli hafi rætt saman um atvikið.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×