Viðskipti erlent

Mynd af milljarðamæringi

Warren Buffett, sem verður 78 ára á árinu, hefur um nokkurra mánaða skeið leitað eftirmanns síns í forstjórastólinn.Markaðurinn/AFP
Warren Buffett, sem verður 78 ára á árinu, hefur um nokkurra mánaða skeið leitað eftirmanns síns í forstjórastólinn.Markaðurinn/AFP MYND/AFP

Warren Buffett fæddist í borginni Omaha í Nebraskaríki 30. ágúst árið 1930 og hefur alið allan sinn aldur í heimabænum. Buffett verður þessu samkvæmt 78 ára á þessu ári. Eins og fram kemur annars staðar á síðunni er hann síður en svo í eldri kantinum í hópi ríkustu manna heims.

Buffett er tvígiftur. Fyrri eiginkona hans lést fyrir fjórum árum en þau höfðu verið gift frá árinu 1952. Þau höfðu hins vegar ekki búið saman frá því seint á áttunda áratug síðustu aldar en eiga saman tvo syni og eina dóttur. Buffett giftist ástkonu sinni að eiginkonunni genginni fyrir tveimur árum.

Vegur Buffetts hófst fyrir alvöru árið 1962 þegar fjárfestingarfélag hans hóf að kaupa bréf í bandaríska textílfyrirtækinu Berkshire Hathaway. Markmiðið var það sama og í dag – að kaupa bréf í fyrirtækjum sem Buffett taldi undir markaðsvirði og ættu mikið undir sér. Síðan skyldi halda þeim eins lengi og hægt væri. Hann tók við forstjórastólnum átta árum síðar og hefur setið þar alla tíð.

Öldungurinn hefur hins vegar sagt kaupin þau verstu sem hann hafi gert. Ekki tókst að snúa rekstrinum við og breytti Buffett því fyrirtækinu smám saman í fjárfestingarfélag undir sama nafni. Hann hefur nú um nokkurra mánaða skeið leitað eftirmanns síns.

Þótt Buffett hafi löngum þótt aðhaldssamur í fjármálum – hann hefur búið í sama húsinu í rúma hálfa öld og með tiltölulega lágar tekjur miðað við aðra forstjóra – hefur hann þótt afar gjafmildur þegar kemur að góðgerðarmálum. Sem dæmi ákvað hann um mitt ár 2006 að gefa góðgerðar- og félagasamtökum 80 prósenta hlutafjáreignar sinnar í Berk­shire Hathaway á næstu árum. Stærstur hluti gjafarinnar rennur til sjóðs sem Bill Gates og eiginkona hans reka. Sjóðurinn berst gegn sjúkdómum og vinnur að aukinni menntun í þróunarríkjunum.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×