Launalegt réttlæti til handa grunnskólakennurum! 2. mars 2007 05:00 Á liðnu hausti og það sem af er vetri hafa farið fram viðræður milli aðila um endurskoðunarákvæði í kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga (LN) og Kennarasambands Íslands (KÍ) vegna grunnskólans. Þar á að meta hvort breytingar á skólakerfinu eða almenn efnahags- og kjaraþróun frá undirritun kjarasamnings 17. nóvember 2004, fram á haust 2006, gefi tilefni til viðbragða og ákveða þær ráðstafanir sem aðilar verða sammála um. Ljóst er að aðilar eru sammála um að almenn efnahags- og kjaraþróun gefi tilefni til viðbragða, en það er það eina sem aðilar eru sammála um. LN hefur boðið 0,75% hækkun frá síðustu áramótum sem gerir það að samningsbundin launahækkun upp á 2,25% hækkar í 3%. Þessu til viðbótar býður LN hækkun um 1,25% ofan á 2,25% hækkun launa 1. janúar 2008 gegn framlengingu kjarasamningsins til 31. maí 2008. Félag grunnskólakennara (FG) telur þetta tilboð LN engan veginn mæta efnahagsþróun síðustu tveggja ára og áhrif þeirrar þróunar á kaupmátt launa kennara. Forstöðumaður kjarasviðs LN segir nýverið í blaðagrein að við samanburð FG á kjaraþróun leikskólakennara og þroskaþjálfa gleymi FG að taka tillit til möguleika á yfirvinnu í grunnskólanum, en að mínu viti tekur maður ekki yfirvinnu, viðbótarvinnu við 1800 stundir á ári, inn í dæmið þegar dagvinnulaun eru borin saman. Forstöðumaður kjarasviðs LN segir ennfremur að kostnaðarauki kjarasamnings grunnskólakennara hafi verið svo mikill 2004 að ekki sé ástæða til að leiðrétta hann á grundvelli almennrar efnahags- og kjaraþróunar. Að mínu viti er aukaatriði hvað síðasti kjarasamningur kostaði LN í upphafi, endurskoðunarákvæðið stendur sjálfstætt. LN þarf að axla ábyrgð gagnvart starfi grunnskólanna í landinu, ef sveitarstjórnarmenn vilja sýna að þeir vilji í raun metnaðarfullt skólastarf og að þeir vilji halda menntun í landinu í fremstu röð OECD landa, þá þarf að hækka laun grunnskólakennara og gera þau samkeppnishæf á við laun annarra háskólamenntaðra starfsmanna á Íslandi. Höfundur er formaður Félags grunnskólakennara. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson skrifar Skoðun Borgin þarf ekki kjötexi — hún þarf mælikerfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson skrifar Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ræður Evrópusambandið hvort dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun 4.677 nýir vegfarendur á leið í skólann Lára Hrafnsdóttir,Gunnar Geir Gunnarsson skrifar Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Sjá meira
Á liðnu hausti og það sem af er vetri hafa farið fram viðræður milli aðila um endurskoðunarákvæði í kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga (LN) og Kennarasambands Íslands (KÍ) vegna grunnskólans. Þar á að meta hvort breytingar á skólakerfinu eða almenn efnahags- og kjaraþróun frá undirritun kjarasamnings 17. nóvember 2004, fram á haust 2006, gefi tilefni til viðbragða og ákveða þær ráðstafanir sem aðilar verða sammála um. Ljóst er að aðilar eru sammála um að almenn efnahags- og kjaraþróun gefi tilefni til viðbragða, en það er það eina sem aðilar eru sammála um. LN hefur boðið 0,75% hækkun frá síðustu áramótum sem gerir það að samningsbundin launahækkun upp á 2,25% hækkar í 3%. Þessu til viðbótar býður LN hækkun um 1,25% ofan á 2,25% hækkun launa 1. janúar 2008 gegn framlengingu kjarasamningsins til 31. maí 2008. Félag grunnskólakennara (FG) telur þetta tilboð LN engan veginn mæta efnahagsþróun síðustu tveggja ára og áhrif þeirrar þróunar á kaupmátt launa kennara. Forstöðumaður kjarasviðs LN segir nýverið í blaðagrein að við samanburð FG á kjaraþróun leikskólakennara og þroskaþjálfa gleymi FG að taka tillit til möguleika á yfirvinnu í grunnskólanum, en að mínu viti tekur maður ekki yfirvinnu, viðbótarvinnu við 1800 stundir á ári, inn í dæmið þegar dagvinnulaun eru borin saman. Forstöðumaður kjarasviðs LN segir ennfremur að kostnaðarauki kjarasamnings grunnskólakennara hafi verið svo mikill 2004 að ekki sé ástæða til að leiðrétta hann á grundvelli almennrar efnahags- og kjaraþróunar. Að mínu viti er aukaatriði hvað síðasti kjarasamningur kostaði LN í upphafi, endurskoðunarákvæðið stendur sjálfstætt. LN þarf að axla ábyrgð gagnvart starfi grunnskólanna í landinu, ef sveitarstjórnarmenn vilja sýna að þeir vilji í raun metnaðarfullt skólastarf og að þeir vilji halda menntun í landinu í fremstu röð OECD landa, þá þarf að hækka laun grunnskólakennara og gera þau samkeppnishæf á við laun annarra háskólamenntaðra starfsmanna á Íslandi. Höfundur er formaður Félags grunnskólakennara.