Erlent

McCann hjónin eru peningalaus

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Sjóður McCann hjónanna er að tæmast.
Sjóður McCann hjónanna er að tæmast.
Peningasjóðurinn sem Kate og Gerry McCann hafa safnað til þess að greiða fyrir leitina að dóttur þeirra er að tæmast. Madeleine hvarf í Portúgal í byrjun maí. Fyrst eftir að það gerðist streymdu peningar inn til foreldra hennar svo þau gætu leitað að henni en verulega hefur dregið úr framlögum í sjóðinn. Hann nemur nú um 130 milljónum íslenskra króna.

Þriðjungur af þessari upphæð verður notaður til að greiða fyrir samning sem McCann hjónin gerðu við leyniþjónustustofnunina Metodo 3. Líklegt er að hún þiggi 260 þúsund krónur á hverjum degi frá hjónunum. Þegar búið er að bæta við útlögðum kostnaði er líklegt að heildarreikningur sem hjónin greiða leyniþjónustinni verði 98 milljónir króna.

Í þessari upphæð er ekki innifalin kostnaður hjónanna við að kynna málstað sinn. McCann hjónin hafa einnig aðra sérfræðinga á sínum snærum en talsmaður þeirra sagði að milljarðamæringurinn Brian Kennedy greiddi þann kostnað. Þá hafa aðrir milljarðamæringar eins og Richard Branson boðist til að greiða lögfræðikostnað hjónanna. En ekki er vitað hversu miklar fjárhæðir þessir milljarðamæringar hafa lagt í sjóðinn sjálfan eða hvort þeir myndu grípa inn í ef sjóður McCann hjónanna myndi tæmast.

Verulega dró úr gjöfum til sjóðs hjónanna eftir að ljóst varð að þau hefðu notað hluta af honum til að greiða 260 þúsund krónur í húsnæðislán á mánuði og fengu stöðu grunaðra vegna hvarfs dóttur þeirra. Talsmaður þeirra segir að eðlilegt sé að flæði í sjóðinn minnki eftir að hann er stofnaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×