Innlent

Nýr framkvæmdastjóri hjá SI

Jón Steindór Valdimarsson er nýr framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.
Jón Steindór Valdimarsson er nýr framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. MYND/Teitur

Jón Steindór Valdimarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins frá og með næstu mánaðamótum.

Hann tekur við af Sveini Hannessyni sem hefur verið framkvæmdastjóri samtakanna og þar áður Félags íslenskra iðnrekenda í 16 ár. Sveinn hefur ráðið sig sem framkvæmdastjóri Gámaþjónustunnar.

Jón Steindór hefur unnið hjá Samtökum iðnaðarins og Félagi íslenskra iðrekenda frá árinu 1988 en frá stofnun Samtaka iðnaðarins árið 1993 hefur hann lengst af gegnt starfi aðstoðarframkvæmdastjóra.

Jón Stendór er stjórnarformaður Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, situr í stjórn Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands og á sæti í Ráðgjafanefnd EFTA.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×