Innlent

„Þörf fólks fyrir húsnæði hverfur ekki þó forsætisráðherra óski þess“

Jakob Hrafnsson, formaður Sambands ungra framsóknarmanna.
Jakob Hrafnsson, formaður Sambands ungra framsóknarmanna.

Stjórn Sambands ungra Framsóknarmanna lýsir yfir þungum áhyggjum yfir stöðu mála á húsnæðismarkaði.

Í fréttatilkynningu frá sambandinu kemur fram að verðmyndun á markaðnum sem og aðstæður á lánsmarkaði geri það nú að verkum að ungu fólki sé nánast ómögulegt að eignast sína fyrstu íbúð.

„Þá er leigumarkaðurinn ekki valkostur til lengri tíma enda leiguverð á íbúðarhúsnæði nú einnig í sögulegu hámarki.

Ungt fólk krefst raunverulegra aðgerða af hálfu stjórnvalda, enda ekki boðlegt að einu viðbrögð forsætisráðherra þjóðarinnar, séu að segja fólki að kaupa sér ekki húsnæði. Þörf fólks fyrir húsnæði hverfur ekki þó forsætisráðherra kunni að óska sér þess.

Stjórnvöld verða að stemma stigu við villtum dansi bankanna á markaðnum og standa vörð um Íbúðalánasjóð sem tryggir aðgang allra landsmanna að ódýru lánsfé, óháð búsetu," segir tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×