Híbýli rónanna verða rifin Jón Hákon Halldórsson skrifar 21. nóvember 2007 10:43 Mummi í Götusmiðjunni saknar Gunnarsholts. „
Ég mun sakna húsanna. Þetta er að mörgu leyti mjög sérstakt hverfi þarna þar sem nokkrir af frægustu rónum landsins bjuggu," segir Guðmundur Týr Þórarinsson í Götusmiðjunni. Til stendur að rífa húsin í Gunnarsholti þar sem áður var meðferðarheimili fyrir unglinga í fíkniefnavanda. Ríkið á húsin og hafði Landspítalinn þau til afnota frá því um miðjan sjötta áratug síðustu aldar og rak heimili fyrir áfengissjúklinga allt til ársins 2002. Eftir það tók starfsemi Götusmiðjunnar við. Nú heyra húsin og landsvæðið hins vegar undir Landgræðslu ríkisins. Í fjárlagafrumvarpinu er lagt til að Landgræðslan fái 10 milljónir króna til viðhalds á þremur íbúðarhúsum sem þarna stóðu og til að rífa aðalhúsið, þar sem skjólstæðingar höfðu aðstöðu. „Það er merkileg saga í kringum aðalhúsið. Það er svolítið byggt eins og gömlu geðspítalarnir," bætir Guðmundur við. „Mér finnst alveg synd og skömm að horfa á ríkiseignir grotna þarna ofan í jörðina. Það hefði alveg mátt nýta þessi hús betur. Við hefðum vel getað verið þarna lengur ef húsunum hefði verið haldið við," segir hann. Guðmundur segist þó ánægður með ný híbýli Götusmiðjunnar í Brúarholti í Grímsnesi. „Það fer vel um okkur og ég er hreykinn að segja frá því að ríkið hefur viðhaldið þessum húsum vel," segir Guðmundur að lokum.
Mest lesið Bæta ekki fallvarnir við veginn: „Þetta er eilífur slagur“ Innlent „Myndi ekki mæla með þessu við nokkurn mann“ Innlent Gular viðvaranir í kortunum Veður Samningur í höfn: „Búið að skemma ansi mikið fyrir okkur“ Innlent Steypumót féll á starfsmann byggingarfyrirtækis Innlent Óvissu erlendra nemenda tímabundið eytt Erlent Sæki um íslenska vegabréfsáritun til að ferðast annað Innlent Óttast að boð og bönn ráðherra muni setja verslanir í þrot Innlent Sigríður fannst heil á húfi Innlent Tékkneski og bandaríski herinn ásamt flugsystrum á Akureyri Innlent Fleiri fréttir Sigríður fannst heil á húfi Fara fram á gæsluvarðhald vegna alvarlegrar stunguárásar Þyrlan send út vegna göngumanns í sjálfheldu Samningur í höfn: „Búið að skemma ansi mikið fyrir okkur“ Ógnarhópar með tengsl við Kína, Aþena og hinseginhátíð í Hrísey Sæki um íslenska vegabréfsáritun til að ferðast annað „Myndi ekki mæla með þessu við nokkurn mann“ Kattholt yfirfullt Steypumót féll á starfsmann byggingarfyrirtækis Bæta ekki fallvarnir við veginn: „Þetta er eilífur slagur“ Tékkneski og bandaríski herinn ásamt flugsystrum á Akureyri Þinglok hvergi í augsýn: „Málþóf! Málþóf!“ Segir komu írsku lögreglunnar marka tímamót í leitinni að Jóni Þresti Vinnuslys í Laugardal þar sem maður fékk járnstöng í andlitið Ísland tekur þátt í aðgerðum gegn skuggaflota Rússlands Óttast að boð og bönn ráðherra muni setja verslanir í þrot Leit að Sigríði heldur áfram um helgina Kenningar um hvarfið, uggandi rafrettusalar og málabunkinn Flugvél á leið til Íslands lent í Manchester Hörður Svavarsson er látinn Allir úr stærsta árgangi sögunnar fengu inni Lýsa eftir Hlyni Vandamenn megi ekki lengur hjálpa glæpamönnum Leikskólabarn með áverka en starfsmaður sýknaður Lagt hald á fíkniefni og búnað til framleiðslu Konan fær að dúsa inni í tvær vikur í viðbót Fimm í haldi vegna fíkniefnamálsins „Heilög skylda“ að málþæfa gegn „dellumálum“ í allt sumar Leitin að Jóni Þresti og hópmálsókn ferðaþjónustunnar Tomasz tekur við formennsku í innflytjendaráði Sjá meira