Íslenski boltinn

Jóhannes Karl dregur sig úr hópnum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jóhannes Karl er hér fyrir miðju.
Jóhannes Karl er hér fyrir miðju. Nordic Photos / Getty Images

Jóhannes Karl Guðjónsson hefur dregið sig úr leikmannahópi íslenska landsliðsins en á heimasíðu KSÍ segir að það sé vegna veikinda.

Ásgeir Gunnar Ásgeirsson, leikmaður FH, hefur verið valinn í hans stað.

Í gær dró Eiður Smári Guðjohnsen sig úr landsliðinu af persónulegum ástæðum og þá var greint frá því í vikunni að Ívar Ingimarsson væri hættur.

Eyjólfur Héðinsson var kallaður inn í hópinn í gær í stað Eiðs Smára.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×