Fullyrðingar um verðsamráð kallar á flýtimeðferð rannsóknar 2. nóvember 2007 09:51 MYND/Hilmar Þór
Neytendasamtökin telja fullyrðingar um verðsamráð á matvörumarkaði sem birst hafi í fjölmiðlum kalla á flýtimeðferð á rannsókn Samkeppniseftirlitsins á matvörumarkaðnum sem nú standi. Í frétt á vef samtakanna er bent á að verðsamráð sé alvarlegasta brotið á samkeppnislögum. Þá segja Neytendasamtökin það mjög alvarlegt ef rétt sé að matvöruverslanir hafi rangt við í verðkönnunum og plati um leið neytendur. Ef rétt reynist séu verslanir bæði að brjóta gegn samkomulagi um framkvæmd verðkannana og lög um óréttmæta viðskiptahætti og gagnsæi markaðarins. Í þeim lögum segir meðal annars: „Óheimilt er að veita rangar, ófullnægjandi eða villandi upplýsingar í auglýsingum eða með öðrum hætti eða beita öðrum slíkum viðskiptaaðferðum sem sama marki eru brenndar, enda séu upplýsingar þessar og viðskiptaaðferðir fallnar til að hafa áhrif á eftirspurn eða framboð vara, fasteigna, þjónustu eða annars þess sem haft er á boðstólum í atvinnustarfsemi sem lög þessi taka til." Þá segja Neytendasamtökin að verðkannanir séu nauðsynlegar og að tryggja verði að einstaka verslanir geti ekki spilað með verðkannanir og að neytendur verði upplýstir um slíkt. Hagar og Samtök verslunar og þjónustu annars vegar og ASÍ hins vegar hafi deilt um verðkannanir ASÍ að undanförnu en Neytendasamtökin segja að ASÍ hafi í gegnum árin staðið sig vel í sínu verki. Stjórnvöld styðji óháðar verðkannanir Leggur stjórn Neytendasamtakanna áherslu á að verðkannanir og verðsamanburður verði sem auðveldastur fyrir neytendur. „Þetta þarf að gera með því að bera saman verð í verslunum og birta verð með nöfnun verslana opinberlega. Það má vel vera að hægt sé að bæta viðbótarupplýsingum fyrir neytendur eins og viðskiptaráðherra hefur látið Neytendastofu kanna. Þar yrði byggt á rafrænum upplýsingum sem verslanirnar eiga og verða að heimila notkun annarra aðila á, en slík heimild liggur ekki fyrir. Minnt er einnig á að Hagstofan gefur út góðar upplýsingar um verðþróun hér á landi og einnig í samanburði við önnur Evrópulönd. Það má byggja upp margvíslega upplýsingagjöf til neytenda og minnir stjórnin á að mikilvægt sé að Hagstofan byrji að skrá hreina heildsöluvísitölu neysluvöru. Hægt væri að lesa mikilvægar upplýsingar úr slíku og ekki vanþörf á þegar heildsalar og smásalar takast á vegna verðbreytinga," segir á vef Neytendasamtakanna.Hvetja samtökin stjórnvöld til að styðja við óháðar verðkannanir sem hafi það eitt að markmiði að veita neytendum sem bestar upplýsingar um verð á vörum í. Það sé óásættanlegt gagnvart neytendum ef verðkönnunum verði úthýst úr ákveðnum verslunum og markaðsráðandi öflum þannig látið eftir hvernig upplýsingum um verð á vörum sé komið á framfæri við neytendur.
Mest lesið Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Innlent Fleiri fréttir Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Sjá meira