Innlent

Ekki lengur í haldi vegna smyglskútumáls

Maðurinn sem handtekinn var á mánudag og úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna gruns um tengsl við smyglskútumálið á Fáskrúðsfirði er laus úr haldi lögreglu.

Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að ekki séu lengur rannsóknarhagsmunir fyrir því að hafa hann áfram í haldi. Gælsuvarðhaldsúrskurður yfir manninum var til 23. október. Fjórir menn, sem grunaðir eru um aðild að málinu, eru enn í gæsluvarðhaldi en sá fimmti hefur hafið afplánun vegna dóms fyrir annað brot.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×