Fékk svarið sem ég beið eftir 18. október 2007 21:03 Friðrik Ragnarsson
Þjálfarar Grindavíkur og KR voru miskátir með sína menn í kvöld eins og gefur að skilja. Friðrik Ragnarsson sagði sína menn í Grindavík hafa svarað tapinu ljóta gegn Keflavík á fullkominn hátt, en Benedikt Guðmundsson var hundóánægður með varnarleik sinna manna. "Strákarnir eru búnir að hafa nokkra daga til að velta sér upp úr tapinu gegn Keflavík þar sem við vorum mjög daprir og þetta var búin að vera leiðinleg vika fyrir okkur. Það var frábært að ná í þennan sigur gegn KR og mér fannst þessi leikur vera skemmtun í hæsta gæðaflokki," sagði Friðrik Ragnarsson, þjálfari Grindavíkur. "Deildin núna er sú sterkasta sem ég man eftir frá því ég byrjaði í körfubolta og því er mjög sætt að ná að vinna Íslandsmeistarana. Ég fór fram á að strákarnir svöruðu fyrir lélegan leik í Keflavík hér í kvöld og maður þarf sannarlega að spila vel til að vinna KR," sagði Friðrik. Benedikt Guðmundsson var ósáttur við varnarleik sinna manna í kvöld, en ögn sáttari við sóknarleikinn. "Ég var nú bara ósáttur við varnarleikinn frá fyrstu mínútu. Við vitum alveg að þetta Grindavíkurlið getur skorað og þeir hittu vel í kvöld, en það breytir því ekki að maður er hundsvekktur yfir öllum þessum sniðskotum sem við vorum að gefa þeim hérna. Sóknarleikurinn er að smella hjá okkur og það er jákvætt, en við verðum að laga þennan varnarleik - sem á að vera okkar aðalsmerki," sagði Benedikt.
Dominos-deild karla Mest lesið Þóra grætur í koddann ef Þorsteinn verður áfram með liðið Fótbolti Segir dóttur sína hafa gert mistök með því að velja íslenska landsliðið Fótbolti Mátti ekki kaupa íbúð Babe Ruth Sport „Þetta snýst ekki bara um Sveindísi og Karólínu“ Fótbolti Sjáðu þáttinn um N1 mótið: Sprungnar vindsængur, lukkuljón og Ronaldo hárgreiðsla Fótbolti Danska þjóðin í áfalli: „Verra en okkar versta martröð“ Sport Jordan Henderson snýr aftur í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Hneig niður tvisvar á risamóti í golfi Golf Tók fjóra daga þegar hún var tíu ára en getur nú unnið fimmta árið í röð Sport Viðurkenndi sök og má ekki keppa í CrossFit í fjögur ár Sport Fleiri fréttir Áframhaldandi NBA tengingar í Bónus deildinni Taka einn efnilegasta leikmanninn frá Íslandsmeisturum Hauka Julio de Assis og Luka Gasic í Stjörnuna Birkir Hrafn í NBA akademíunni „Þetta gerist rosa hratt“ Sengun í fantaformi í sumarfríinu Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Sjá meira