Innlent

Enn einn Garðbæingurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald

Andri Ólafsson skrifar
Sjötti maðurinn sem úrskurðaður var í gæsluvarðhald í tengslum við fíkniefnasmyglið á Fáskrúðsfirði í vikunni er tengdur Garðarbæjarklíkunni svokölluðu í málinu. Hann heitir Arnar Gústafsson og er fæddur 1980. Þrír af fimm sem sitja í varðhaldi vegna málsins eru úr Garðabæjarklíkunni svokölluðu.

Arnar er góðvinur bræðranna Einars Jökuls og Loga Freys Einarssonar, sem og Alvars Óskarssonar en allir eru þeir úr Garðabæ og hafa allir verið handteknir vegna þessa máls. Loga Frey, sem búsettur er í Noregi, var hins vegar sleppt skömmu síðar.

Allir þessir menn eru æskuvinur úr Garðabæ og hafa verið viðriðnir fíkniefnaviðskipti undanfarin ár, fyrir utan Loga Frey sem flutti til Noregs fyrir nokkrum árum.

Arnar var handtekinn í vikunni en fréttastofa Stöðvar 2 sagðist í kvöld hafa heimildir fyrir því að það hafi verið gert eftir ábendingu frá einum handteknu í málinu.

Einar jökull Einarsson er sá eini af þeim sem handtekinn var daginn sem málið komst upp sem ennþá situr í einangrun. Hinir eru allir komnir í lausagæslu.

Lögreglan fylgdist grannt með Einari Jökli og Bjarna Hrafnkelssyni sem taldir eru höfuðpaurar málsins áður en það komst upp í síðasta mánuði. Símar þeirra voru hleraðir og þeim veitt eftirför í marga mánuði. Sú rannsókn skildi eftir sig mikið af gögnum sem gagnast við yfirheyrslur nú.

Meðal þeirra gagna sem lögregla hefur aflað eru ljósmyndir sem sýna Einar Jökul í bönkum hérlendis að skipta stórum upphæðum í erlendan gjaldeyri. Þá hefur Vísir heimildir fyrir því að lögreglan skoði einnig peningamillifærslur frá Einari og Bjarna inn á vini og vandamenn í Danmörku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×